SKÝRSLAN: Grindavík vinnur grannaslaginn í hægum leik
Hvað réði úrslitum?
Gæði sóknarmanna Grindavíkur. Í annars gæðalitlum leik þá komust heimamenn í nokkrar sóknir og náðu að skora mörk svo einfalt er það.
Bestu leikmenn
1. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Grindavík)
2 mörk í dag og nokkuð líflegur í leiknum. Ef Grindavík ætlar að skora mörk á tímabilinu þá verður hann að vera í svipuðu stuði og í dag
2. Kairo Edwards-John (Grindavík)
Kairo átti að skora 2 í þessum leik en niðurstaðan er 1 mark og 1 stoðsending. Hæfileikaríkasti leikmaður leiksins í dag og alltaf gaman að sjá hann hlaupa með boltann.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins kom á 44. mínútu og fram að því var ekkert sem lá í loftinu fyrir hvorug lið. Þetta var svo sannarlega kærkomið fyrir heimamenn sem gátu andað léttara í hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík fer tímabundið upp í 1.sæti með 4 stig en það á líklega eftir að breytast þar sem þetta var fyrsti leikur umferðarinnar.
Þróttur Vogum skellir sér í neðsta sætið með 0 stig og -6 í markatölu eftir 2 leiki.
Þróttur Vogum skellir sér í neðsta sætið með 0 stig og -6 í markatölu eftir 2 leiki.
Vondur dagur
Það voru margir leikmenn sem áttu vondan dag í dag en sá versti að mínu mati var Pablo Gállego Lardiés. Hann var algjörlega týndur í framlínunni og í þau örfáu skipti sem hann fékk boltann gerði hann lítið við hann.
Dómarinn - 6
Það var ekki mikið af stórum ákvörðunum sem Guðgeir þurfti að taka en í nokkur skipti stoppaði hann leikinn í langan tíma sem gerði leikinn leiðinlegri. Nokkur smá atriði sem voru röng hjá honum líka.



