Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta-deild kvenna
Hásteinsvöllur
Gífurlegur vindur
ÍBV
ÍBV
1 - 2
Þróttur R.
Þróttur R.
Ameera Abdella Hussen 32'1 - 01 - 179' Murphy Alexandra Agnew1 - 283' Sæunn Björnsdóttir
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Áhorfendur: Allir hressir

SKÝRSLAN: Eitt af mörkum tímabilsins skildi liðin að

Hvað réði úrslitum?

Þetta var leikur tveggja hálfleika, eða svo má segja. ÍBV var með yfirhöndina í þeim fyrri og Þróttur að mestu leyti í seinni hálfleik. Það má segja að vindurinn hafi spilað inn í að einhverju leyti hvað það varðar því ÍBV var með vindinn í bakið í fyrri hálfleik og Þróttur í þeim seinni. Það tók Þróttara smá tíma að finna taktinn í seinni, en það tókst að lokum og þær náðu að ýta frábærum sigri yfir línuna.

Bestu leikmenn

1. Katla Tryggvadóttir (Þróttur R.)

Fór fyrir Þrótti í seinni hálfleik. Á í raun fyrra markið og hún ýtti sínu liði áfram í átt að sigrinum. Mjög hættuleg í sínum aðgerðum framarlega á vellinum.

2. Íris Dögg Gunnarsdóttir (Þróttur R.)

Var mjög öflug í markinu, sérstaklega í fyrri hálfleik. Bjargaði því að ÍBV komst ekki í 2-0 forystu.

Atvikið

Það er í raun ekki annað hægt en að velja markið sem Sæunn skoraði. Maður lifandi hvað það var flott. Vindurinn hjálpaði vissulega, en samt sem áður er um að ræða eitt af mörkum tímabilsins. Hér er einnig hægt að tala um dauðafæri sem Kristín Erna Sigurlásdóttir fékk til að koma ÍBV í 2-0 í fyrri hálfleik. Hún komst ein í gegn en Íris Dögg varði frá henni.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur vinnur sinn annan sigur í sumar og fer upp í fjórða sæti með sjö stig. ÍBV er með fjögur stig í sjöunda sæti. Mótið er enn ungt og margt sem getur gerst.

Vondur dagur

Kristín Erna Sigurlásdóttir og Ameera Abdella Hussen áttu mjög flotta spretti í fyrri hálfleik og sáu um að skora mark ÍBV í leiknum. En, þær fengu báðar mjög fín færi til að bæta við mörkum og nýttu þau ekki. Það kom í bakið á Eyjakonum í seinni hálfleik.

Dómarinn - 7

Bílflauturnar fóru nokkrum sinnum í gang en mér fannst hann dæma heilt yfir vel. ÍBV vildi fá víti í fyrri hálfleik en mér fannst persónulega rétt að dæma ekki á það, miðað við upptökuna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.