Leik lokið!
FH hafa betur með tveimur mörkum gegn engu hér í Kaplakrika.
Ekki mikið fyrir augað þessi leikur en sterku heimasigur engu að síður.
93. mín
Baldur Logi með flott hlaup en kemur boltanum ekki fyrir markið.
91. mín
Fáum +4 í uppbót.
89. mín
Það hefur hægst aðeins á þessu síðustu mínútur.
87. mín
InnJose Enrique Seoane Vergara
ÚtSigurður Arnar Magnússon
87. mín
InnNökkvi Már Nökkvason
ÚtTelmo Ferreira Castanheira
85. mín
InnOliver Heiðarsson
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
85. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
84. mín
Felix Örn með aukaspyrnu sem Gunnar grípur en jafnvægið ekki meira en svo að hann fer næstum inn með boltann en gerir þó vel að halda honum frá marklínunni.
81. mín
Guðjón Ernir með fasta fyrirgjöf sem Gunnar nær ekki að halda en FH bjarga í horn.
Ekkert verður hinsvegar úr horninu.
80. mín
Gult spjald
Tómas Bent Magnússon
77. mín
Gult spjald
Guðjón Ernir Hrafnkelsson
Brýtur á Vuk Oskar.71. mín
InnLogi Hrafn Róbertsson
ÚtBjörn Daníel Sverrisson
71. mín
InnMáni Austmann Hilmarsson
ÚtMatthías Vilhjálmsson
70. mín
Vuk Oskar með flotta fyrirgjöf sem Guðjón Orri missir út í teigin og Matti Villa svo dæmdur brotlegur.
68. mín
Felix Örn með fallhlífarbolta fyrir Gunnar.
64. mín
MAAAARK!
Davíð Snær Jóhannsson (stoðsending: Kristinn Freyr Sigurðsson)
FH tvöfaldar forystu sína! Virkilega lúmskur bolti inn í hlaupaleiðina hjá Davíð Snæ sem setur hann framhjá Guðjóni Orra og kemur FH tveim mörkum yfir! Kristinn Freyr þræddi heldur betur nálaraugað þarna.61. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtHans Kamta Mpongo
61. mín
InnTómas Bent Magnússon
ÚtGuðjón Pétur Lýðsson
60. mín
Frábært spil hjá FH kemur Birni Daníel einum á móti Gauja í marki ÍBV en Guðjón Orri gerir frábærlega að loka á hann.
57. mín
Aftur svolítið eins og á köflum í fyrri hálfleik eru það eyjamenn sem eru að spyrja spurningarnar á vellinum. Vantar bara gæðin til þess að klára sóknirnar.
53. mín
Hornspyrnan slök og yfir alla og markspyrna.
52. mín
Felix Örn vinnur horn fyrIr ÍBV.
48. mín
Guðjón Pétur reynir fyrirgjöf í stað skots sem FH skalla frá.
47. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan vítateig FH.
46. mín
Felix Örn að komast í áhugaverða stöðu en fyrirgjöfin er hreinsuð frá.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað.
45. mín
Andri Rúnar reynir skot fyrir utan teig en Gunnar ekki í vandræðum með það.
Í sömu andrá flautar Jóhann Ingi til loka fyrri hálfleiks.
Fáum vonandi ögn meiri skemmtun í þeim síðari.
41. mín
Kristinn Freyr!
Fær frábæra sendingu út vistri og keyrir inn á teig, tékkar yfir á hægri og á gott skot en framhjá markinu. Hefðum hæglega getað séð FH tvöfalda forystu sína þarna!
35. mín
ÍBV með flotta útfærslu af aukaspyrnu beint af æfingarsvæðinu en skalli Sigurðar Arnars fer yfir markið.
33. mín
Björn Daníel gerir vel í að finna Steven Lennon sem virðist vera í kjörstöðu en fyrsta snertingin sveik hann og ÍBV bjarga.
29. mín
MAAAARK!
Matthías Vilhjálmsson (stoðsending: Björn Daníel Sverrisson)
FH KOMIÐ YFIR!! Björn Daníel þræðir Matta Vil innfyrir sem gerir frábærlega að halda sig í línu og setur hann svo framhjá Guðjón Orra í marki ÍBV.27. mín
Steven Lennon!!
Pressar frábærlega á vörn ÍBV og nær boltanum en skotið hans yfir markið! Hefðum sennilega séð þennan inni á góðum degi hjá Steven Lennon en ekki í dag.
22. mín
Andri Rúnar með skot sem hann vill meina að hafi farið í höndina á FH-ingum en fær bara hornspyrnu.
20. mín
Ekkert varð úr þeirri spyrnu.
20. mín
Davíð Snær sækir hornspyrnu fyrir FH.
18. mín
Það eru gestirnir frá eyjum sem hafa byrjað þennan leik örlítið betur þó FH eigi enn sem komið er hættulegustu tilraunina en hvorugt liðið hefur þó skapað fyrsta hættulega marktækifærið á rammann.
13. mín
Hornspyrnan er hættuleg en dettur út aftur til Guðjóns Péturs sem á kraftlítið skot beint á Gunnar í marki FH.
12. mín
ÍBV með fyrstu hornspyrnu leiksins.
7. mín
Felix Örn með fyrirgjöf/skot sem Gunnar Nielsen tekur.
6. mín
Kristinn Freyr finnur Matta Vil innfyrir vörn ÍBV en skotið rétt framhjá stönginni!
Eyjamenn vildu rangstöðu en flaggið fór ekki upp.
4. mín
Hemmi er strax farin að láta vel í sér heyra á hliðarlínunni. BIðlar til Jóhanns Inga um að flauta þegar honum fannst brotið á sínum mönnum.
2. mín
Fyrsta hálffærið er eyjamanna.
1. mín
Það eru FH sem byrja þennan leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt og má sjá hér til hliðar.
Heimamenn í FH gera 3 breytingar á sínum hóp. Eggert Gunnþór Jónsson kemur aftur inn í liðið en ásamt honum koma Davíð Snær Jóhannsson og Vuk Oskar Dimirtijevic og á bekkinn fara Ástbjörn Þórðarson, Haraldur Einar Ásgrímsson og Máni Austmann Hilmarsson
ÍBV gera þá einnig þrjár breytingar. Guðjón Pétur Lýðsson kemur aftur inn í byrjunarliðið en einnig koma Hans Kamta Mpongo og Elvis Okello Bwomono. Þá detta Jón Ingason, Sito og Tómas Bent Magnússon á varamannabekk ÍBV.
Fyrir leik
Jóhann Ingi Jónsson verður dómari þessa leiks og honum til aðstoðar verða þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Kristján Már Ólafs.
Þorvaldur Árnason verður á skiltinu og þá mun Björn Guðbjörnsson hafa eftirlit með dómgæslunni í dag.
Fyrir leik
FH
Leikir: 5
Sigrar: 1
Jafntefli: 1
Töp: 3
Mörk Skoruð: 7
Mörk fengin á sig: 10
Markatala: -3
Síðustu leikir
KA 1-0 FH
FH 2-2 Valur
Breiðablik 3-0 FH
FH 4-2 Fram
Víkingur R 2-1 FH
Markahæstir:
Matthías Vilhjálmsson - 2 Mörk
Ólafur Guðmundsson - 2 Mörk
Vuk Oskar Dimitrijevic - 1 Mark
Steven Lennon - 1 Mark
Mani Austmann Hilmarsson - 1 Mark
Fyrir leik
ÍBV
Leikir: 5
Sigrar: 0
Jafntefli: 2
Töp: 3
Mörk skoruð: 6
Mörk fengin á sig: 11
Markatala: -5
Síðustu leikir
ÍBV 1-2 KR
Keflavík 3-3 ÍBV
ÍBV 1-1 Leiknir R
ÍBV 0-3 KA
Valur 2-1 ÍBV
Markahæstir:
Andri Rúnar Bjarnason - 2 Mörk
Sigurður Arnar Magnússon - 2 Mörk
Telmo Ferreira Castanheira - 1 Mark
Fyrir leik
FH hafa byrjað tímabilið heldur brösulega og aðeins unnið einn leik það sem af er móti, gert eitt jafntefli og tapað þrem.
FH heimsóttu KA á Dalvík í síðustu umferð en urðu að lúta í lægra hald gegn "heimamönnum" frá Akureyri þar sem það var reyndar heimamaðurinn frá Dalvík, Nökkvi Þeyr Þórisson sem skoraði sigurmarkið í uppbótartíma venjulegs leiktíma.
Fyrir leik
ÍBV leita enn af sínum fyrsta sigri í sumar en í 5 leikjum hafa þeir gert tvö jafntefli og tapað þrem leikjum.
ÍBV töpuðu í síðustu umferð gegn KR 1-2 á Hásteinsvelli þar sem Ægir Jarl kom gestunum yfir áður en Kristinn Jónsson jafnaði fyrir ÍBV með sjálfsmarki, það var svo Kennie Chopart sem innsiglaði sigur KR.
Fyrir leik
Bæði lið hafa farið rólegra af stað en þau hefðu eflaust viljað og sitja í neðri hluta deildarinnar eftir 5.umferðir loknar.
Fyrir leik
Komið margblessuð og sæl og verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Kaplakrika þar sem heimamenn í FH fá eyjamennina í ÍBV í heimsókn þegar 6.umferð Bestu deildar karla hefur göngu sína.




