SKÝRSLAN: Þróttur kláraði Þór/KA á fyrsta hálftímanum
Hvað réði úrslitum?
Heimakonur mættu mun tilbúnari til leiks og voru komnar 3-0 yfir eftir 28. mínútna leik. Þróttur fann svæði bakvið varnarlínu Þór/KA sem þær nýttu gríðarlega vel. Sigurinn var aldrei í hættu.
Bestu leikmenn
1. Katla Tryggvadóttir
Katla lék frábærlega í kvöld, sérstaklega í fyrri hálfleik. Yfirveguð og örugg á boltann og átti tvær stoðsendingar sem hefðu getað verið fleiri ef Þróttur hefði nýtt fleiri færi.
2. Murphy Alexandra Agnew
Skoraði tvö mörk og var sífellt ógnandi fremst á vellinum. Varnarmenn Þór/KA voru í miklum vandræðum með hana. Fleiri leikmenn sem gera tilkall, Danielle og Álfhildur voru mjög góðar.
Atvikið
Set þriðja mark Þróttar hér. Álfhildur skoraði það eftir hornspyrnu og þá varð þetta orðið gríðarlega erfitt fyrir Þór/KA að ætla að koma til baka. Er ekki oft talað um að þriðja markið drepi leiki?
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur jafnar Selfoss að stigum á toppi deildarinnar með 10 stig, en Selfoss á leik til góða. Þór/KA áfram í 6. sæti með 6 stig.
Vondur dagur
Varnarlína Þór/KA leit oft ansi illa út í dag. Það virtist vera full auðvelt fyrir Þrótt að finna sendingu í gegn og fá dauðafæri.
Dómarinn - 8
Flott frammistaða, engin vafaatriði svo sem.



