SKÝRSLAN: Stjarnan tók þrjú stig í Mosó
Hvað réði úrslitum?
Jafnræði var með liðunum á köflum en Stjarnan sterkari heilt yfir og ýttu Aftureldingu lengra og lengra niður. Stjarnan skorar tvö síðustu mörkin úr hornum.
Bestu leikmenn
1. Jasmín Erla Ingadóttir
Hún skoraði tvö mörk í dag og á þetta skuldlaust skilið. Hún skilaði líka óeigingjarnri vakt á miðjunni.
2. Katrín Ásbjörnsdóttir
Mikilvægur hlekkur í uppspili Stjörnunnar. Sterk í loftinu, átti stoðsendingu í fyrsta markinu og kláraði leikinn með marki á 90. mín.
Atvikið
Það verður að vera hornspyrnan á 85. mín sem Stjarnan skorar úr. Afturelding vildi meina að leikmaður Stjörnunnar hefði gefið leikmanni Aftureldingar olnbogaskot. Erfitt var að sjá atvikið þar sem þetta var ein stór hrúga í teignum.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan lyftir sér upp í fimmta sæti með sjö stig en Afturelding situr sem fastast í níunda sæti með þrjú stig eftir fimmtu umferð.
Vondur dagur
Ég verð að skrá þetta á dómara leiksins. Hann var ekki sannfærandi og bekkur Aftureldingar trylltist í lokin og uppskar rautt spjald. Lesa má um atvikið í "Atvikið" hér að neðan.
Dómarinn - 5
Sá nokkur atvik sem auðveldlega væri hægt að dæma öðruvísi og allt sauð upp úr í lokin.



