Leik lokið!
Leiknum er lokiuð. KR vinnur öruggan 3-0 sigur og fer áfram í bikarnum.
Viðtöl og skýrsla innan skamms.
90. mín
93 Mín.
Kenni Chopart með skot yfir úr teignum eftir flottan undirbúning frá Ægi
90. mín
Fimm mínútum bætt við
88. mín
Emil enn í færum. Skýtur í innkast úr ágætis færi.
83. mín
MAAAARK!
Aron Þórður Albertsson (stoðsending: Theodór Elmar Bjarnason)
Þetta kalla ég innkomu í lagi. Aron Þórður búinn að vera inni á vellinum í ca 30 sekúndur þegar hann skorar og klárar leikinn fyrir KR. Theodór Elmar þræddi boltann smekklega innfyrir á Aron sem kláraði.82. mín
InnSigurður Bjartur Hallsson
ÚtAtli Sigurjónsson
82. mín
InnAron Þórður Albertsson
ÚtHallur Hansson
82. mín
InnDaníel Freyr Kristjánsson
ÚtBjörn Berg Bryde
79. mín
Þarna hefði KR hæglega getað klárað leikinn eftir hraða sókn. Hallur renndi boltanum fyrir á Ægi Jarl sem hafði allann tímann í heiminum til að hlaða í skot einn gegn Haraldi en Halli sá við honum. Hallur fékk frákastið og skaut í hliðarnetið.
79. mín
InnÓlafur Karl Finsen
ÚtAdolf Daði Birgisson
78. mín
InnOliver Haurits
ÚtÞórarinn Ingi Valdimarsson
76. mín
Aftur er Stjarnan í hörkufæri en leikmenn fara illa að ráði sínu. Frábær undirbúningur frá Óla Val sem sendir boltann inn á teiginn á Emil sem virðist renna í grasinu. Stjörnumenn vilja fá víti en mér sýnist hann bara hafa runnið
75. mín
Nú er KR í góðu færi. Atli vinnur boltann á góðum stað og rennir honum á Stefán Ljubicic sem setur boltann yfir markið.
73. mín
Stjörnunni er ekki ætlað að skora. Fá geggjað færi eftir fyrirgjöf frá vinstri. Fyrst missir Adolf af boltanum áður en Óli Valur setur boltann í hliðarnetið.
72. mín
InnStefan Alexander Ljubicic
ÚtKjartan Henry Finnbogason
71. mín
Danni Finns með skot framhjá. Nú fer hver að verða síðastur í liði heimamanna til að hleypa lífi í þetta.
65. mín
Það eru ekki sömu yfirburðir hjá KR í seinni hálfleik, sem hefur reyndar verið saga þeirra í sumar. Ef Stjörnumenn ná að skora fljótlega gæti þetta orðið að leik!
64. mín
InnPontus Lindgren
ÚtFinnur Tómas Pálmason
Held að Finnur sé búinn að vera hálftæpur eftir höggið í fyrri hálfleik.
62. mín
Kjartan Henry var gjörsamlega aleinn á vallarhelmingi Stjörnuliðsins sloppinn í gegn. Fer framhjá Halla í markinu en Brynjar Gauti er fljótur að átta sig. Skilar sér til baka og bjargar í lokin.
55. mín
EMIL ATLASON!! Eins og hann hefur verið duglegur við markaskorun í sumar virðist hann eiga off dag núna. Fékk færi af markteig eftir fyrirgjöf frá Ísaki en hitti ekki boltann
52. mín
Besta færi Stjörnumanna til þessa. Emil Atlason með skalla naumlega yfir eftir góða sókn
46. mín
45. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtÓskar Örn Hauksson
Heimamenn gera tvær skiptingar í hálfleik
45. mín
InnBrynjar Gauti Guðjónsson
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
Heimamenn gera tvær skiptingar í hálfleik
45. mín
Hálfleikur. KR 2-0 yfir í hálfleik. Flottur leikur hjá KR en heimamenn þurfa að gera miklu betur
45. mín
+2
Stjarnan fær horn en dæmt sóknarbrot í sömu andrá og það er sparkað í boltann. Lýsandi fyrir sóknarleik Stjörnuliðsins í dag.
43. mín
Grétar Snær með fína skottilraun eftir horn en boltinn yfir markið.
42. mín
Gult spjald
Ægir Jarl Jónasson
Stoppar sókn39. mín
Jóhann Árni á hér skot fyrir heimamenn en það er beint á Beiti sem á ekki í teljandi vandræðum með að verja.
38. mín
Finnur Tómas skokkar aftur inn á og virðist vera í lagi. Leit verr út en raunin varð
36. mín
Ljótur árekstur á vellinum. Pálmi (KR) ýtir Eggerti, leikmanni Stjörnuliðsins á Finn Tómas í KR og þeir skella harkalega saman. Finnur liggur eftir. Vonandi ekki alvarlegt
32. mín
Stjörnumenn vildu fá aukaspyrnu í aðdraganda marksins og eru allt annað en ánægðir með dómarann. Eftir endursýningu verð ég eiginlega að vera sammála þeim.
31. mín
MAAAARK!
Atli Sigurjónsson
Atli Sigurjóns er hér að tvöfalda forystu KR. Aron Kristófer átti geggjaðan sprett upp vinstri kantinn. Stjörnumenn hreinsuðu en boltinn fór beint á Atla Sig sem skoraði með góðu skoti. Boltinn hafði viðkomu í leikmanni Stjörnunnar og breytti um stefnu. Nú er brekka fyrir þá bláu.28. mín
Óli Valur með geggjaðan sprett og fíflar nánast alla varnarlínu KR. En skotið er slakt og beint á beiti. Amk jákvætt að sjá aðeins meiri brodd í Stjörnunni. Sóknarleikur þeirra hefur ekki verið upp á marga fiska fyrsta hálftímann.
25. mín
KR ingar halda áfram að búa til hættu. Hægri vængurinn að dæla inn fyrirgjöfum og Halli er með nóg að gera í markinu
20. mín
Loksins kom líf í Stjörnuna. Óskar Örn með skot naumlega yfir.
15. mín
Núna á Kennie hörkuskot við enda teigsins en Halli gerir vel að verja. Einstefna ða marki heimamanna.
14. mín
Aftur gott færi hjá KR. Atli Sigurjóns með fyrirgjöf beint á kollinn á Kjartani sem náði ekki nægum krafti í skallann og Haraldur ver í markinu
11. mín
Kjartan Henry í ágætis færi eftir stungusendingu frá Halli en skotvinkillinn var orðinn þröngur og skotið framhjá.
10. mín
Ekkert varð úr horninu en KR heldur áfram að ógna. Mjög grimmir hérna í Garðabænum. Heimamenn eiga í stökustu vandræðum við að komast fram yfir miðju.
8. mín
KR liðið miklu betra þessar fyrstu mínútur. Eiga núna hornspyrnu frá vinstri
5. mín
MAAAARK!
Hallur Hansson
KR í sókn. Kjartan Henry reynir að prjóna sig inn á teig heimamanna en þeir ná að pota boltanum í burtu. Það vill samt ekki betur til fyrir Stjörnuna en svo að boltinn fær beint á Hall sem stendur við enda vítateigsins og skorar með góðu skoti í hornið hægra megin1. mín
KR á horn eftir 35 sekúndur en ekkert verður úr horninu
1. mín
Þetta er farið af stað. Gestirnir úr KR eiga upphafssparkið
Fyrir leik
Þetta er þriðji leikurinn sem ég textalýsi fyrir Fótbolta.net í sumar. Í fyrri leikjunum tveimur hafa verið samtals 12 mörk, mikið stuð og dramatík. Ég vona bæði mín og áhorfenda vegna að þessi leikur verði jafn skemmtilegur
Fyrir leik
10 mínútum fyrir leik verður að segjast að mætingin er ekkert sérstök. Örfáir í stúkunni. Vonandi að það týnist inn fólk áður en leikurinn verður flautaður á.
Fyrir leik
Óskar Örn Hauksson er hér að mæta sínum gömlu félögum úr KR, þar sem hann lék í fjöldamörg ár.
Fyrir leik
Við hlupum aðeins á okkur hér að neðan. Það er Jóhann Ingi Jónsson sem flautar leikinn en ekki Þorvaldur Árnason
Fyrir leik
Ágúst Gylfason gerir tvær breytingar á liði Stjörnunnar frá síðasta leik í Bestu deildinni en Daníel Laxdal og Ólafur Karl Finsen detta út og þá koma þeir Óskar Örn Hauksson og Eggert Aron Guðmundsson inn.
Rúnar Kristinsson gerir einnig tvær breytingar á liði KR en Kjartan Henry Finnbogason og Pálmi Rafn Pálmason koma inn fyrir Þorstein Má Ragnarsson og Stefan Ljubicic.
Fyrir leik
Þorvaldur Árnason er dómari leiksins í dag og er með þá Andra Vigfússon og Kristján Má Ólafs sér til aðstoðar á línunum. Erlendur Eiríksson er á skiltinu og eftirlitsmaður KSÍ er Gunnar Jarl Jónsson.
Þorvaldur Árnason dæmir í dag.
Þorvaldur Árnason dæmir í dag.Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsigu frá viðureign Stjörnunnar og KR í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla.
Leikurinn hefst klukkan 19:45 á Stjörnuvelli í Garðabæ.


