Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deild
KR-völlur
KR
KR
1 - 1
Fram
Fram
0 - 136' Kristinn Ingi HalldórssonKjartan Henry Finnbogason (víti) 84'1 - 1
Dómari: Magnús Þórisson
Myndir: Fótbolti.net - Reynir Pálsson
0. mín
Heil og sæl og velkomin í beina textalýsingu frá leik KR og Fram í Pepsi-deildinni sem kokkurinn úr Sandgerði, Magnús Þórisson, flautar á klukkan 18:00. Aðstoðardómarar eru Frosti Viðar Gunnarsson og Andri Vigfússon.
0. mín
Byrjunarliðin má sjá til hliðar. Viktor Bjarki Arnarsson er í banni og er ekki með KR í kvöld. KR stillir fram sama byrjunarliði og vann glæsilegan sigur gegn FH í síðustu umferð. Kjartan Henry Finnbogason er á bekknum áfram en athygli vekur að KR er með tvo varamarkverði á bekknum sínum.
0. mín
Framarar leika ekki með neinn eiginlegan sóknarmann í dag. Skiljanlegt að Þorvaldur Örlygsson stilli fram varnarsinnaðri uppstillingu eftir sýninguna sem KR hélt í Krikanum. Sveinbjörn Jónasson er geymdur á bekknum.
0. mín
KR er fimm stigum á eftir toppliði FH. Framarar eru í tíunda sæti, aðeins stigi á undan Selfossi sem er í fallsæti. Þetta er því gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið sem berjast á sitthvorum enda töflunnar. Ef KR vinnur ekki leikinn verður staða FH augljóslega enn betri svo sigur ekkert annað kemur til greina hjá heimamönnum.
0. mín
Liðin hita upp við tóna frá Björgvini Halldórssyni. Gullvagninn er í spilaranum hjá Hlyni Valssyni vallarþul. Þess má geta að hann leikur með Snæfellingum frá Stykkishólmi.
0. mín
Jæja, spámenn kvöldsins eru mættir: Ingvar Örn Ákason, fréttastjóri Sport.is: 2-1 sigur KR. Alexander Freyr Einarsson, 433: 3-0 fyrir KR. Smalinn með þrennu. Kolbeinn Tumi Daðason, 365: 4-0. Punktur. Kristján Jónsson, Bolvíska stálið á Morgunblaðinu: Klassískt 2-0. Bjarni Fel, legend: Þetta er 2-1.
1. mín
Leikurinn er hafinn - Framarar sækja í átt að KR-heimilinu. Ekki margir áhorfendur mættir á KR-völlinn, sérlega fáir Fram-megin í stúkunni.
5. mín
Hörkufæri! Fyrirgjöf frá Kristni Inga á Sam Hewson sem var í skallafæri en hitti ekki rammann.
9. mín
Framarar byrja þennan leik af krafti. Kristinn Ingi er í fremstu víglínu hjá þeim í kvöld.
16. mín
Framarar hafa átt miðsvæðið það sem af er. Almarr var nálægt því að spóla sig í gegn en var stöðvaður á síðustu stundu.
22. mín
Þvílíkt tækifæri! Skyndisókn hjá KR-ingum sem voru komnir 2 gegn 1 en Óskar Örn fór illa að ráði sínu og sparkaði knettinum á eina staðinn sem hann átti ekki að fara á. Alan Lowing náði að verjast þessu.
KR
22. mín
InnAtli Sigurjónsson
ÚtJónas Guðni Sævarsson
Meiðsli hljóta að vera ástæða þessarar skiptingar.
28. mín
Völlurinn blautur og menn eru rennandi um allt.
30. mín
Skemmtilegt atvik. Boltinn af Magnúsi dómara og í innkast. Framarar fá svo innkastið svo menn í blaðamannastúkunni grínast með að Magnús sé þá augljóslega KR-ingur.
31. mín
Er hrifinn af baráttuanda Fram-liðsins hingað til. Hörkuleikur í gangi.
Fram
36. mín
MAAAARK!

Kristinn Ingi Halldórsson

Kristinn var frábær gegn Breiðabliki og heldur uppteknum hætti í kvöld! Glæsilegt skot hjá honum. fékk boltann fyrir utan teig og náði fallegu skoti sem tók snúning í hornið.
38. mín
Lykilmenn KR þurfa að stíga upp. Menn eru langt frá því að sýna sömu tilþrifin og í Krikanum.
40. mín
Síðasti sigur Fram í deildarleik í Vesturbænum kom í júní árið 2000. Steinar Guðgeirsson og Sigurvin Ólafsson skoruðu mörk Framara í 2-1 sigri en Einar Þór Daníelsson skoraði þá mark KR. Mun tólf ára bið Fram ljúka í kvöld.
44. mín
Hlynur Atli Magnússon með frábæra tæklingu og kemur í veg fyrir að Óskar Örn Hauksson kemst í dauðafæri.
45. mín
Hálfleikur - Baráttuglaðir Framarar leiða. KR-ingar verið mjög daprir.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
51. mín
Kristinn Ingi með stórhættulegan bolta fyrir. KR-ingar ekki byrjaðir í seinni hálfleik og feilsendingarnar frá þeim koma á færibandi.
KR
52. mín
Gult spjald

Óskar Örn Hauksson

Óskar verið heillum horfinn í kvöld.
54. mín
Jæja! KR sýnir smá lífsmark. Gary Martin með skot yfir.
57. mín
Þvílík ringulreið í teignum hjá KR! Endar með skoti sem Hannes náði að verja frá Kristni. Vandræðagangurinn heldur áfram hjá KR.
KR
59. mín
InnKjartan Henry Finnbogason
ÚtEmil Atlason
66. mín
Ég fæ ekki nóg af því að hrósa vinnusemi Framliðsins í kvöld.
69. mín
DAUÐAFÆRI!!! Sam Tillen einn á móti Hannesi en skaut beint á markvörðinn! Þarna hefði hann nánast gert út um leikinn.
73. mín
Örlítið meira líf í KR núna. En Fram á að vera búið að gera út um þennan leik! Spurning hvort gestirnir fái það í bakið að hafa ekki nýtt færin.
KR
76. mín
InnMagnús Már Lúðvíksson
ÚtHaukur Heiðar Hauksson
77. mín
KR ansi nálægt því að jafna metin! Baldur Sigurðsson með hörkuskot fyrir utan teig sem Ögmundur náði að verja en hélt ekki boltanum. Atli Sigurjónsson kom á siglingunni en Ögmundur náði svo aftur að klófesta knöttinn.
Fram
78. mín
InnSveinbjörn Jónasson
ÚtDaði Guðmundsson
KR
80. mín
Gult spjald

Atli Sigurjónsson

83. mín
KR-ingar að sækja í sig veðrið. Útlit fyrir taugastrekkjandi lokamínútur fyrir gestina.
KR
84. mín
MAAAARK!

Kjartan Henry Finnbogason

Kjartan jafnar úr víti! Sam Hewson braut á Atla Sigurjónssyni. Hárréttur dómur og Kjartan, hin gríðarlega örugga vítaskytta, náði að skora.
Fram
84. mín
Gult spjald

Samuel Hewson

KR
88. mín
Gult spjald

Guðmundur Reynir Gunnarsson

91. mín
Stórsókn hjá KR! Ótrúlegt að liðið hafi ekki skorað. Kjartan Henry fékk svo færi en Fram náði að verjast þessu!
92. mín
ÓTRÚLEGAR mínútur í gangi. Bæði lið búin að fá algjör dauðafæri. Sveinbjörn fyrst hjá Fram en Hannes varði og svo Gary Martin hinumegin en Ögmundur varði.
Fram
93. mín
InnJón Gunnar Eysteinsson
ÚtAlmarr Ormarsson
94. mín
LEIK LOKIÐ - Jafntefli í mögnuðum leik! Framarar mun betri lengst af en KR-ingar bitu frá sér á lokasprettinum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.