Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Pepsi-deild karla
Nettó völlurinn í Keflavík
12 stiga hiti og skýjað. Lítill vindur.
Keflavík
Keflavík
0 - 4
Valur
Valur
0 - 115' Kolbeinn Kárason0 - 283' Kolbeinn Kárason0 - 388' Indriði Áki Þorláksson0 - 492' Indriði Áki Þorláksson
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr.
0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Vals í Pepsi-deild karla. Liðin eru klár hér sitthvorum megin við textann.
0. mín
Keflvíkingar þurfa að brydda upp á nýtti miðju í dag því allir miðjumennirnir úr síðasta leik sem var 0-1 sigur í Vestmannaeyjum eru í leikbani í dag. Þetta eru þeir Denis Selimovic, Frans Elvarsson og Einar Orri Einarsson. Í þeirra stað koma inn í byrjunarliðið þeir Sigurbergur Elísson, Rafn Markús Vilbergsson og Jóhann Birnir Guðmundsson.
0. mín
Valur gerir tvær breytingar frá 1-2 tapi gegn Fylki í síðasta leik Matarr Jobe í leikbanni og Andri Fannar Stefánsson á bekknum og í þeirra stað koma Úlfar Hrafn Pálsson og Haukur Páll Sigurðsson
0. mín
Keflvíkingar verða að fá hrósið því þeir eiga það skilið. Það er hvergi eins góð tónlist spiluð á vellinum fyrir leiki og hér. Alvöru rokk og ról sem kemur öllum í stuð, innan sem utan vallar.
0. mín
Liðin eru komin út á völl. Haraldur Freyr Guðmundsson fær núna afhentan blómvönd fyrir að hafa spilað 100 leiki fyrir Keflavík.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Heimamenn í Keflavík byrja með boltann og leika í átt að íþróttahúsinu.
6. mín
Svona er liðunum stillt upp í dag. Keflavík Ómar Hilmar Geir - Rafn Markús - Haraldur - Jóhann Ben Magnús Þór - Sigurbergur Jóhann Birnir Bojan - Guðmundur - Magnús Þórir Valur Sindri Jónas Næs - Atli Sveinn - Halldór Kristin - Úlfar Hrafn Guðjón Pétur - Rúnar Már Haukur Páll Matthías - Kolbein - Kristinn Freyr
8. mín
Valsmenn setja mikla pressu á Keflavík í byrjun leiks. Úlfar Hrafn var að setja boltann í netið í kjölfar tveggja dauðafæra sem Ómar náði að verja. Markið var dæmt af vegna rangstöðu. Mínútu síðar skaut Kolbeinn framhjá úr fínu færi.
10. mín
Það eru ekki bara almennir stuðningsmenn í stúkunni. Hingað er mættur Bjarni Jóhansson þjálfari Stjörnunnar og Heimir Guðjónsson og Guðlaugur Baldursson þjálfarar FH auk annarra.
Valur
15. mín
MAAAARK!

Kolbeinn Kárason

Rúnar Már S. Sigurjónsson tók aukaspurnu við endalínu við enda vítateigsins þvert í teiginn. Varnarmenn Keflavíkur voru í erfiðleikum með að verjast og á endanum kom Kolbeinn Kárason og setti boltann yfir marklínuna af nokkurra sentímetra færi.
27. mín
Jóhann Birnir með fast skot utan af velli sem Sindri varði en hélt ekki boltanum. Valsmenn náðu að hreinsa frá.
Keflavík
29. mín
Rautt spjald

Hilmar Geir Eiðsson

Hilmar Geir Eiðsson fær beint rautt spjald fyrir ljóta tæklingu á Halldór Kristinn á miðjum vallarhelmingi Keflavíkur. Halldór Kristinn var að sækja upp völlinn þegar Hilmar fór í hann með sólann á undan sér og Þóroddur dómari gat ekki annað en lyft rauðu. Stuðningsmenn Keflavíkur eru reyndar ekki sáttir og töldu ekkert á brotið.
Keflavík
34. mín
Gult spjald

Guðmundur Steinarsson

Valur
34. mín
Gult spjald

Halldór Kristinn Halldórsson

Guðmundur Steinarsson var full ágengur á eftir boltanun þegar hann og Atli Svein lágu í baráttu um hann. Halldór Kristinn rauk á eftir Guðmundi þegar hann stóð upp og Þóroddur spjaldaði þá báða.
39. mín
Kolbeinn með fast skot úr þröngu færi sem Ómar varði í stöngina.
43. mín
Haukur Páll með skot fyrir utan teig sem fór rétt framhjá marki Keflavíkur.
44. mín
Þessi leikur er bara einstefna. Rúnar Már fékk núna sendingu frá Hauki Páli utarlega í teignum og skaut rétt framhjá.
45. mín
Það er kominn hálfleikur á Nettóvellinum í Keflavík. Valur er með 0-1 forystu og manni fleiri.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Engar breytingar eru gerðar á liðunum.
Valur
53. mín
Gult spjald

Kolbeinn Kárason

Kolbeinn gekk að Jóhanni Ragnari og ýtti við honum í pirringi og fær áminningu fyrir það.
54. mín
Kolbeinn með fast skot að marki Keflavíkur sem Ómar varði. Mínútu síðar var Rúnar Már með skot rétt framhjá marki Keflavíkur.
Valur
56. mín
InnGuðmundur Þór Júlíusson
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
58. mín
Rúnar Már skaut yfir markið úr aukaspyrnu af 35 metra færi.
60. mín
Það eru 850 áhorfendur á Keflavíkurvelli.
Valur
61. mín
Gult spjald

Úlfar Hrafn Pálsson

Keflavík fær aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig til hliðar við teiginn miðan eftri brot Úlfars. Ekkert kom úr spyrnunni
Keflavík
62. mín
Gult spjald

Jóhann Ragnar Benediktsson

Þórir Guðjónsson lék á hvern Keflvíkinginn á eftir öðrum svo Jóhann Ragnar sá sig tilneyddan að stöðva hann.
66. mín
Keflavík vildi vítaspyrnu eftir að Bojan Ljubicic féll í teignum eftir viðskipti við Úlfar Hrafn. Heimamenn í stúkunni eru mjög ósáttir við Þórodd dómara sem valdi að flauta ekki.
67. mín
Ómar greip vel inní eftir að boltinn skaust að marki eftir tæklingu Hauks Páls í teignum.
76. mín
Sigurbergur Elísson með skot í varnarmann og horn.
Keflavík
77. mín
Gult spjald

Rafn Markús Vilbergsson

78. mín
Kolbeinn tók góðan snúing rétt fyrir utan teig og fast skot að marki sem Ómar varði. Skömmu áður hafði Haukur Páll skallað rétt framhjá eftir aukaspyrnu Úlfars Hrafns.
Keflavík
83. mín
InnDaníel Gylfason
ÚtSigurbergur Elísson
Sigurbergur varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla.
Valur
83. mín
MAAAARK!

Kolbeinn Kárason

Kolbein skoraði með skalla eftir fyrirgjöf Þóris Guðjónssonar af vinstri kanti.
85. mín
Rúnar Már ætlar að skora. Fyrst skaut hann í stöngina og mínútu síðar rétt framhjá.
Valur
85. mín
InnÁsgeir Þór Ingólfsson
ÚtMatthías Guðmundsson
Valur
86. mín
InnIndriði Áki Þorláksson
ÚtKolbeinn Kárason
Valur
88. mín
MAAAARK!

Indriði Áki Þorláksson

Indriði var að koma inná sem varamaður og skorar með sinni fyrstu snertingu eftir sendingu Þóris Guðjónssonar af vnistri kanti. Indriði er sonur Þorláks Árnasonar þjálfara kvennaliðs Stjörnunar sem urðu bikarmeistarar um helgina.
Valur
92. mín
MAAAARK!

Indriði Áki Þorláksson

Indriði var á auðum sjó eftir sendingu Rúnars og skoraði með góðu skoti. Þvílík innkoma.
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 0-4 sigri Vals sem með því hefur sætaskipti við Keflavík, fara í sjötta sætið. Frekari umfjöllun og viðtöl hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.