Fotbolti.net
Besta deildin
Ingi Snær Karlsson
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
1 - 0
Selfoss
Selfoss
Hildur Antonsdóttir 29'1 - 0
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 367
Myndir: Hrefna Morthens
Leik lokið!
Breiðablik sigrar eftir tíðindalítin leik.

Minni á viðtöl og skýrslu síðar í kvöld.
90. mín
Blikar keyra upp í sókn en Sif Atla með góðan varnarleik.
90. mín
Katla María með góða skiptingu yfir á Bergrósi sem vinnur horn fyrir Selfoss.
90. mín
Kristjana vinnur horn fyrir Blika.
90. mín
Það eru þó heilum fjórum mínútum bætt við.
89. mín
Bergrós Ásgeirs rangstæð, lítill tími eftir fyrir Selfoss að jafna.
87. mín
Áslaug sendir í Barbáru Sól og fær horn.
85. mín
Clara misreiknar sendingu og Magdalena Anna kemst í hana og skýst af stað upp völlinn. Breiðablik eru þó fljótar að loka á þessa sókn.
85. mín
Kristjana Sigurz á fyrirgjöf sem Sif sparkar í horn.
83. mín
Ekki búið að vera um mörg færi í þessum síðari hálfleik...
83. mín
Taylor Marie með alltof fasta sendingu upp á Kristjönu.
82. mín
Unga kynslóðin búin að vera virk í stúkunni í dag.
Selfoss
80. mín
InnMagdalena Anna Reimus
ÚtUnnur Dóra Bergsdóttir
79. mín
Brenna gerir þetta ótrúlega vel!

Fær boltan með bakið við Ástu Eir, lætur boltann fara í gegnum klofið á sér og Ástu og keyrir upp kantinn.

Ásta eltir hana niður og brýtur á henni.
Breiðablik
78. mín
InnKristjana R. Kristjánsd. Sigurz
ÚtBirta Georgsdóttir
Breiðablik
78. mín
InnKaren María Sigurgeirsdóttir
ÚtAnna Petryk
77. mín
Barbára Sól keyrir upp úr hægri bakverði en á síðan sendingu sem ratar á engan.
74. mín
Selfoss fær aukaspyrnu á furðulegan hátt eftir að Sif og Susanna hlaupa á hvor aðra.
72. mín
Áslaug Munda stelur boltanum, keyrir upp allan völlinn og sendir út á Hildi sem á fast skot í hliðarnetið!
Breiðablik
69. mín
InnClara Sigurðardóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
67. mín
Anna Petryk fær höfuðhögg eftir horn frá Selfossi, hreinlega sá ekki hvort hún hafi skallað stöngina eða hvað.

Það er hinsvegar í lagi með hana sem skiptir mestu máli.
65. mín
Brenna tæp að komast í sendigu frá Telmu í markinu. Telma ísköld og Brenna reynir að renna sér fyrir boltann.
Selfoss
63. mín
InnBergrós Ásgeirsdóttir
ÚtAuður Helga Halldórsdóttir
Selfoss
61. mín
Gult spjald

Sif Atladóttir

Sif fær gult eftir að hafa reynt að stöðva hratt innkast Breiðabliks með höndunum.
61. mín
Miranda með góða hreyfingu fyrir utan teig og tekur skotið en boltinn frekar langt framhjá.
59. mín
Tveir boltar komnir inn á eftir innkast og Brenna liggur eftir eftir samstuð við Ástu Eir.
Selfoss
56. mín
Gult spjald

Kristrún Rut Antonsdóttir

Brot á miðjum velli.
55. mín
Birta Georgs platar varnarmenn Selfossar upp úr skónum og sendir út í teig og Karitas nær boltanum að lokum en skotið framhjá.
52. mín
Miranda fær aukaspyrnu eftir tæklingu frá Ástu Eir.
50. mín
Ásta Eir með fyrirgjöf sem endar í fanginu á Tiffany.
49. mín
Hildur Antons skorar mark en löngu búið að dæma rangstöðu.
47. mín
Natasha sterk í loftinu og skallar hornið frá.
47. mín
Selfoss fær horn eftir fínt uppspil.
46. mín
Leikur hafinn
Blikar byrja seinni.
45. mín
Hálfleikur
Arnar Ingi flautar til hálfleiks.

Bæði lið eiga mikið inni fyrir þann seinni.
45. mín
Karitas vinnur boltann framarlega eftir pressu og henni er kippt strax niður á jörðinna. Breiðablik á aukaspyrnu fyrir utan teig.
43. mín
Birta fer inn í teig af kantinum og hótar skotinu tvisvar áður en hún sendir boltann út í teig þar sem engin er og boltinn í innkast.
41. mín
Aftur fær Taylor boltann í gegn og dæmd rangstæð.
40. mín
Taylor Marie alein í gegn en var kolrangstæð.
39. mín
Natasha með háan bolta fram sem Sif Atla skallar.
37. mín
Breiðablik fljótar niður ef pressan gengur ekki upp og Selfoss í vandræðum með að skapa alvöru færi.
36. mín
Tiffany kemur út og grípur fyrirgjöf frá Alexöndru Jóhanns, vel gert.
36. mín
Katla María brýtur á Hildi við miðju.
34. mín
Susanna Joy stígur Önnu Petryk út og stöðvar skyndisókn eftir hornið.
33. mín
Miranda Nild fær boltann inn í teig og á gott skot sem Telma ver glæsilega í horn.
Breiðablik
29. mín
MAAAARK!

Hildur Antonsdóttir (stoðsending: Taylor Marie Ziemer)

Fær boltann á lofti inn í teig og gerir gríðarlega vel að teygja sig í boltann og klárar listavel út við stöng!
27. mín
Miranda með flottan bolta fram á Auði Helgu sem sendir út á Kristrúnu Rut. Hún sendir fyrir en boltinn berst alla leið yfir á hin kantinn þar sem Susanna Joy reynir líka fyrirgjöf en Blikar koma boltanum frá.
26. mín
Birta vinnur horn fyrir Blika.
25. mín
Barbára Sól gerir vel að komast framhjá Önnu Petryk en klikkar á sendingunni inn á miðju.
23. mín
Natasha með frábæra skiptingu yfir á Önnu Petryk en hún var í rangstöðunni.
21. mín
Sif missir andann eftir að hafa fengið boltann frá Önnu Petryk í magann.
20. mín
Selfoss eiga erfitt með að komast aftur fyrir Blikana. Pressa Breiðabliks að svínvirka.
19. mín
Natasha skallar á Birtu sem sendir fyrir markið en engin þar til að pota honum inn.
18. mín
Taylor hleður í skot fyrir utan en rennur og skotið því misheppnað.
16. mín
Selfoss í erfiðleikum með að koma boltanum burt, Hildur Antons tekur skot fyrir utan sem endar framhjá.
13. mín
Anna Petryk vinnur boltann fyrir utan teig Selfossar, Birta fær boltann en skýtur í Hildi samherja sinn.
13. mín
Natasha nær að skýla boltanum út fyrir endamörk eftir sendingu sem var ætluð Brennu.
11. mín
Karítas fær boltann á miðjunni keyrir upp og sendir síðan út á Önnu Petryk sem á fyrirgjöf beint á Tiffany í markinu.
9. mín
Barbára Sól með langa sendingu fram á Kristrúnu Rut en Blikar skalla í innkast.
7. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu á hægri kanti. Áslaug tekur en Tiffany kýlir boltann frá.
5. mín
Áslaug Munda fær horn, Birta tekur hornið og eftir nokkur fráköst á Natasha skalla sem Tiffany á ekki í erfiðleikum með.
4. mín
Unnur Dóra tapar boltanum á miðjunni og Breiðablik keyra upp. Ekkert verður úr því.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir frá Selfossi byrja!
Fyrir leik
Breytingar á liðum

Bæði lið gera eina breytingu á byrjunarliðum frá síðasta leik.

Karitas Tómasdóttir kemur inn fyrir Melinu Ayres hjá Breiðablik.

Hjá Selfossi kemur Katla María Þórðardóttir inn fyrir Bergrósu Ásgeirsdóttur.
Fyrir leik
Selfoss

Liðið er í þriðja sæti með 14 stig. Með sigri í dag geta þær farið upp fyrir Stjörnuna og jafnvel Val ef Afturelding tekst að vinna þær síðar í kvöld.


Fyrir leik
Breiðablik

Liðið er í fimmta sæti með 12 stig. Þrátt fyrir þrjú töp á móti Keflavík, ÍBV og Val er liðið með +12 í markatölu.


Fyrir leik
Veriði hjartanlega velkomin á beina textalýsingu þar sem Breiðablik og Selfoss mætast í 8. umferð Bestu-deildar kvenna.

Leikurinn hefst kl 19:15 á Kópavogsvelli.


Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.