Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Örlítil gola og hiti um 11 gráður. Toppaðstæður.
Stjarnan
Stjarnan
1 - 1
KR
KR
Daníel Finns Matthíasson 14'1 - 01 - 190' Atli Sigurjónsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Atli Sigurjónsson tryggði KR stig á Samsungvellinum

Hvað réði úrslitum?

KR stjórnaði leiknum frá fyrstu mínútu án þess að ná að skapa sér mikið. Stjarnan komst yfir með marki upp úr engu þegar Daníel Finns fékk boltann inn fyrir vörn KR og kláraði framhjá Beiti. KR hélt áfram og bætti í sóknarþungan sinn í síðari hálfleik og uppskáru jöfnunarmark á 91.mínútu og niðurstaðan sanngjörn að mínu mati.

Bestu leikmenn

1. Daníel Laxdal (Stjarnan)

Daníel Laxdal var geggjaður í kvöld en hann stýrði varnarleik Stjörnunnar vel allan leikinn og skallaði ég veit ekki hvað marga bolta í burtu úr vítateig Stjörnunnar.

2. Theodór Elmar Bjarnason (KR)

Þrátt fyrir þetta vítaklúður hjá Elmari þá var Theodór mikið í boltanum og stýrði spili KR í kvöld. Lagði upp jöfnunarmarkið á Atla Sigurjónsson

Atvikið

Vítaspyrnuklúðrið - KR fékk víti þegar tuttugu mínútur voru eftir og fór Theodór Elmar á punktinn en hann hamraði boltanum yfir. Ef Elmar hefði skorað af punktinum hefði leikurinn breyst mikið.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan lyftir sér upp í annað sæti deildarinnar ásamt Víkingum en bæði lið eru með 19.stig eftir 10 leiki spilaða. KR er í sjötta sæti deildarinnar með 16.stig.

Vondur dagur

Grétar Snær Gunnarsson og Kristinn Jónsson. Grétar Snær fór meiddur útaf eftir 23 mínútur og Kristinn Jónsson sem byrjaði sem meðal varamanna kom inn á fyrir Grétar Snær en þurfti síðan að fara meiddur af velli á 77.mínútu. Áhyggjuefni fyrir Rúnar Kristinsson og KRinga.

Dómarinn - 6.5

Sigurður Hjörtur og hans menn voru bara allt í lagi í kvöld. Stóri vítaspyrnudómurinn réttur sýndist mér en einhverjir dómar út á velli sem Sigurður Hjörtur hefði mátt gera betur í.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.