Fotbolti.net
@arnardadiArnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Forkeppni Meistaradeildar karla
Víkingsvöllur
Levadia Tallinn
Levadia Tallinn
1 - 6
Víkingur R.
Víkingur R.
Zakaria Beglarishvili (víti) 5'1 - 01 - 110' Kyle Douglas Mc Lagan1 - 227' Kristall Máni Ingason1 - 345' Halldór Smári Sigurðsson1 - 449' Nikolaj Andreas Hansen1 - 571' Helgi Guðjónsson1 - 677' Júlíus Magnússon
Dómari: Tomasz Musia (Pólland)

SKÝRSLAN: Flugeldasýning er Víkingur vann sinn fyrsta sigur í Evrópukeppninni

Hvað réði úrslitum?

Víkingar voru einfaldlega miklu, miklu, miklu betra liðið á vellinum í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Kristall Máni Ingason

Tók framúr Pablo Punyed á listanum yfir bestu leikmenn vallarins þegar leið á leikinn. Var góður í fyrri hálfleik og lét þreytta leikmenn Levadia heldur betur hafa fyrir sér í seinni hálfleik. Mark, stoðsending og átti virkan þátt í öðrum mörkum Víkings.

2. Pablo Punyed

Reynsla, yfirvegun og ,,swag" - Pablo blómstraði í kvöld og það var ekki að sjá að hann væri búinn að vera glíma við meiðsli. Stjórnaði allri umferð á miðjunni hjá Víkingum og átti þátt í mörkum liðsins.

Atvikið

Þriðja mark Víkings undir lok fyrri hálfleiks gerði útum vonir gestanna. Fyrsta mark Halldórs Smára í Evrópukeppni og fyrsta mark hans fyrir Víking í mótsleik frá því árið 2011... síðan var smá handarlykt af því sem gerir markið ennþá sætara.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur mætir Inter Escaldes, meistaraliði frá Andorra í úrslitaleik um sæti í forkeppni Meistaradeildarinnar á föstudaginn í Víkinni. Sigurvegarnir úr þeim leik mæta sænska stórliðinu, Malmö.

Vondur dagur

Levadia Tallinn. Punktur basta, bannað að breyta.

Dómarinn - 8

Pólverjinn var ekki í vandræðum með gang mála í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.