Fotbolti.net
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Mjólkurbikar karla
Framvöllur
Léttskýjað og nánast logn.
Kórdrengir
Kórdrengir
2 - 1
Afturelding
Afturelding
Þórir Rafn Þórisson 52'1 - 01 - 185' Elmar Kári Enesson CogicSverrir Páll Hjaltested 116'2 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Óskaleikur Óskars

Hvað réði úrslitum?

Erfitt að segja. Þetta var hörkuleikur frá upphafi en líklega réði það úrslitum að Óskar varði eins og berserkur í marki Kórdrengja og þá sérstaklega í fyrri hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Óskar Sigþórsson

Munurinn á liðunum. Gjörsamlega magnaður í dag og það verður erfitt fyrir Davíð Smára að setja hann aftur á bekkinn

2. Þórir Rafn Þórisson

Skorar draumamark í upphafi seinni hálfleiks og leggur síðan upp sigurmarkið undir lokin með góðri fyrirgjöf. Ekki hægt að kvarta yfir Þóri í dag.

Atvikið

Eftir erfiðan fyrri hálfleik skora Kórdrengir mark í upphafi seinni hálfleiks og það var sannkallað sprellimark þegar Þórir Rafn skoraði beint úr fyrirgjöf

Hvað þýða úrslitin?

Kórdrengir verða í pottinum þegar dregið verður í 8 liða úrslitin. Mosfellingar geta hinsvegar einbeitt sér að deildinni.

Vondur dagur

Færanýting Aftureldingar var ekki til útflutnings í dag.

Dómarinn - 5

Dæmdi leikinn allt í lagi. Skilst samt sem áður á þeim mönnum sem heyrðu og sáu að rauða spjaldið á Davíð Smára hafi verið rangt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.