SKÝRSLAN: Stórmeistarajafntefli gamalla meistara
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar voru heilt yfir betri í þessum leik og komust í þrígang yfir í leiknum. Valsmenn komu alltaf til baka og var það í tvígang vegna lélegrar dekkningar heimamanna. Ætli það megi ekki segja að færanýtingin á öðrum endanum og dekkningin á hinum sé það sem varð til þess að leikurinn endaði með jafntefli.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Bjartur Hallsson
Duglegur allan leikinn og skoraði annað mark KR. Vinnsla sem er virkilega mikilvæg fyrir liðið og var líklegur allan leikinn.
2. Frederik Schram
Kannski skrítið eftir að hafa fengið á sig þrjú mörk en fyrri hálfleikurinn var virkilega góður.
Atvikið
Björgun Hólmars frá Sigurði Bjarti rétt eftir að Valur jafnaði í 3-3 og svo tvöfalda varsla Schram í fyrri hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
Eitt stig á lið. Ég held að KR taki fleira jákvætt úr spilamennskunni en Valur en að Valsmenn séu sáttari með úrslitin miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Liðin eru áfram á óásættanlegum stað í töflunni.
Vondur dagur
Þorsteinn Már, innkoma hans var ekkert sérstök.
Dómarinn - 8
Vel dæmdur leikur. Sá það ekki á vellinum en einhver umræða um að Hólmar hafi mögulega verið fyrir innan í sínu marki. Annrs fannst mér Jóhann hafa góða stjórn á þessum leik.




