SKÝRSLAN: Framarar valta yfir ÍA upp á Skipaskaga
Hvað réði úrslitum?
Framarar voru einfaldlega bara miklu betri. ÍA byrjaði leikinn vel en eftir að Fram komst yfir var þetta aldrei í hættu.
Bestu leikmenn
1. Magnús Þórðarson (Fram)
Magnús á mark og stoðsendingu í kvöld svo var hann viðloðandi flest öll færi Framara í kvöld.
2. Alex Freyr Elísson (Fram)
Þetta var erfitt val milli hans á Más en þar sem Alex skoraði svo frábært mark þá gef ég honum þetta. Var mjög öflugur sóknarlega og skilaði því sem þurfti varnarlega.
Atvikið
Markið hjá Má Ægissyni. Það gerir alveg útaf við leikinn og svo var það frekar skondið. Fyrirgjöf frá vinstri sem endar í netinu og enginn skagamaðurinn sem kemst í boltann.
Hvað þýða úrslitin?
Fram er ennþá í 8. sæti en núna bara stigi frá því sjötta.
ÍA sitja enn fastir við botninn.
ÍA sitja enn fastir við botninn.
Vondur dagur
Framlína ÍA. Skagamenn sköpuðu alveg nokkur færi í leiknum sérstaklega þegar staðan var 0-0. Jón Gísli var yfirburðarmaður sóknarlega og kom með fullt af fínum fyrirgjöfum en sóknarmenn ÍA voru alltaf annaðhvort illa staðsettir eða með léleg skot í lok færa.
Dómarinn - 8
Ekkert við Vilhjálm Alvar og hans teymi að sakast. Héldu línunni sinni nokkuð vel og engin stór atriði sem þurfti að takast á við.




