SKÝRSLAN: Sýning hjá Amber í marki Tindastóls
Hvað réði úrslitum?
Amber var í raun helsta ástæðan fyrir því að Tindastóll fékk stig úr þessum leik. HK fékk mun fleiri hættuleg færi en Murielle komst oft í góðar stöður fyrir Tindastól.
Bestu leikmenn
1. Amber Kristin Michel
Þvílíkar vörslur sem hún átti! Þrátt fyrir klaufaskap í marki HK þá átti hún svo margar geggjaðar vörslur sem gerði það að verkum að Tindastóll fékk stig úr leiknum
2. María Sól Jakobsdóttir
Var virkilega spræk fyrir HK og var að búa til mikið af færum og einnig komst hún sjálf í virkilega góðar stöður
Atvikið
Það var ekki gott að sjá Henríettu meiðast og virtist hún vera sárkvalinn og sjúkraþjálfara beggja liða hlupu inn á völlinn. Vonandi er þetta ekki alvarlegt og ég sendi henni battakveðjur
Hvað þýða úrslitin?
Ekkert breytist með sætinn í deildinni. HK er áfram í 2. sæti en jafna FH að stigum en FH á tvo leiki til góða. Tindastóll er áfram í 3. sæti.
Vondur dagur
Fyrri hálfleikurinn hjá Tindastól var ekki góður. Það var mikið um lélegar sendingar og klaufaleg mistök. Þær komu hinsvegar sterkari út í seinni hálfleikinn.
Dómarinn - 7
Solid leikur hjá dómarateyminu


