Fotbolti.net
Besta deildin
Arnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
2 - 2
Keflavík
Keflavík
Arnar Breki Gunnarsson 9'1 - 01 - 143' Ígnacio Heras AngladaAndri Rúnar Bjarnason 66'2 - 12 - 286' Ígnacio Heras Anglada
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 1355

SKÝRSLAN: Jafnt í Þjóðhátíðarleiknum

Hvað réði úrslitum?

Eftir að ÍBV komst tvívegis yfir í leiknum þá virtist eins og þeir væru orðnir bensínlausir og Keflvíkingar gengu á lagið og jöfnuðu stuttu fyrir leikslok. Þeir hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk á loka mínútunum.

Bestu leikmenn

1. Arnar Breki Gunnarsson

Það var mikið líf í Arnari Breka í leiknum í dag. Hann uppskar bæði mark og síðan var brotið á honum er Andri Rúnar skoraði annað mark ÍBV.

2. Nacho Heras

Nacho Heras færðist í miðvörðinn vegna meiðsla Magnúsar Þórs snemma leiks. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði bæði mörk Keflvíkinga í leiknum.

Atvikið

Adam Ægir Pálsson gerði lítið úr Guðjóni Erni í fyrri hálfleik. Fíflaði hann uppúr skónum á vinstri kantinum og klobbaði hann í kjölfarið. Maður fann til með Guðjóni Erni á þeim tímapunkti.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík jafnar KR að stigum og fara í 6.sætið á meðan ÍBV kemur sér upp fyrir FH og eru komnir í 9.sætið með 12 stig.

Vondur dagur

Magnús Þór Magnússon fyrirliði Keflvíkinga fékk höfuðhögg strax í upphafi leiks. Hann hélt þó leik áfram en þurfti hinsvegar að fara af velli á 15 mínútu.

Dómarinn - 7

Erfiður leikur að dæma. Miðað við erfiðleika stig þá komst Þorvaldur ágætlega frá þessu en nokkur stór atriði sem hægt væri að skoða betur. Var til dæmis boltinn inni í öðru marki Keflvíkinga?
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.