Fotbolti.net
Besta deildin
@AddiLaufArnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Fram
Fram
Besta-deild karla
Framvöllur - Úlfarsárdal
2 - 2
Stjarnan
Stjarnan
0 - 14' Emil AtlasonTiago Manuel Da Silva Fernandes 7'1 - 1Tiago Manuel Da Silva Fernandes 16'2 - 12 - 284' Guðmundur Baldvin Nökkvason
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Bæði lið fara svekkt heim úr Úlfarsárdal með eitt stig

Hvað réði úrslitum?

Einstaklingsgæði hjá Tiago og Óla Íshólm var klárlega stór hluti af því að Framarar fengu stig í kvöld svo vantaði aðeins upp á gæðin á síðasta þriðjung hjá Stjörnunni þar sem þeir komust oft í góðar stöður en góð skemmtun í Úlfarsárdal. Framarar svekktir að fá á sig mark eftir horn í lokin og Stjarnan að gera ekki betur sóknarlega.

Bestu leikmenn

1. Tiago Fernandes

Gerir tvö gjörsamlega frábær mörk í kvöld, rólegur á boltann og var klárlega hættulegasti maður heimamanna, rosalega vanmetinn leikmaður að mínu mati.

2. Ólafur Íshólm Ólafsson

Óli rosalega solid í kvöld, varði nokkrum sinnum mjög vel og greip öll skot nálægt sér og allar fyrirgjafir. Verð líka að nefna Ísak Andra og Guðmund Baldvin sem voru sprækastu leikmenn gestanna.

Atvikið

Frábær varsla Halla Björns snemma í síðari hálfleik í stöðunni 2-1 fyrir Fram, mark þarna og staðan 3-1 fyrir Fram hefði alltaf gert út um leikinn. Snöggur niður og náði að setja fingurgómana í boltann og verja í horn.

Hvað þýða úrslitin?

Framarar eru í 8. sæti með 18 stig meðan að Stjörnumenn eru í 4.sæti, aðeins tveimur stigum á eftir KA sem eru í 3. sæti.

Vondur dagur

Fannst rosa lítið sjást til Daníel Finns í kvöld, kom sér ekki alveg nógu mikið inn í leikinn. Hefði viljað sjá meira frá Danna í kvöld og er að bíða eftir að hann setji sitt mark á tímabilið eftir að hafa gengið til liðs við Garðbæinga í sumar frá Leikni.

Dómarinn - 8,5

Virkilega vel dæmdur leikur hjá Pétri og hans aðstoðarmönnum, var með góð tök og leiknum og með alla dóma á hreinu að mér sýndist.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.