Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 3
KA
KA
0 - 125' Hallgrímur Mar Steingrímsson0 - 239' Nökkvi Þeyr Þórisson (víti)0 - 383' Bryan Van Den Bogaert
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: KA styrkir stöðu sína í átt að Evrópusæti

Hvað réði úrslitum?

Gæði KA einfaldlega voru meiri. Voru alltaf skrefi á undan FH og stýrðu leiknum vel.

Bestu leikmenn

1. Nökkvi Þeyr Þórisson

Skoraði og lagði upp hin tvö. Kemur að öllum mörkum leiksins.

2. Bryan Van Den Bogaert

Var flottur í liði KA og skoraði gott mark. Hafði ógnað marki stuttu áður og átti ekki í miklum vandræðum með FH-ingana.

Atvikið

Held að Eiður Smári hafi orðað þetta best eftir leik - ,,Um leið og við fengum vítið á okkur þá nánast sá ég hjartað úr mínu liði bara sökkva."

Hvað þýða úrslitin?

KA eru komir í 2.sætið um stundarsakir hið minnsta og lítur liðið mjög vel út. FH eru hinsvegar að komast í alvöru vandræði með 11 stig í 10.sæti og gætu endað umferðina fyrir neðan rauða strikið í fallsæti.

Vondur dagur

Sóknarlína FH öskraði skort af sjálfsstrausti þó Vuk hafi kannski verið skástur.

Dómarinn - 7

Heilt yfir flottur dæmdur leikur. Leyfði leiknum að fljóta ágætlega og var lítið að rífa í spjöldin. Kannski eitt og eitt atriði sem mætti skoða aftur en ekkert sem hafði teljandi áhrif.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.