SKÝRSLAN: Stjörnumenn slátruðu Blikunum í grannaslagnum
Hvað réði úrslitum?
Stjörnumenn voru bara betri heilt yfir. Þeir pressuðu virkilega vel og völdu sér líka réttan tíma til þess að pressa. Auk þess voru virkilega ákveðnir einstaklingar virkilega góðir í dag í Stjörnuliðinu.
Bestu leikmenn
1. Eggert Aron Guðmundsson (Stjarnan)
Skorar 2 mörk og var upp og niður völlinn allar 90 mínúturnar. Átti nokkrar virkilega flottar rispur fyrir utan mörkin.
2. Emil Atlason (Stjarnan)
1 mark og 2 stoðsendingar er góður dagur fyrir hvern framherja sem er. Leiddi línuna vel og stoðsendingin hans í fimmta markinu var alveg frábær. Tek það fram að það var virkilega erfitt að velja milli þessara tveggja manna.
Atvikið
Fyrsta markið kom eftir aðeins 4. mínútna leik og það setti tóninn fyrir frábæran fótboltaleik. Markið var líka bara nokkuð flott.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan situr enn í 4. sæti 2 stigum á eftir KA.
Breiðablik er enn á toppnum en núna munar 8 stigum á þeim og Víking í 2. sæti sem á leik til góða.
Vondur dagur
Blika vörnin var alls ekki góð í dag. Ég kannaðist eiginlega bara ekki við hana, það var eins og hver einasti bolti sem Stjarnan setti í gegnum vörnina endaði á samherja og Damir og Viktor gátu ekkert gert.
Dómarinn - 7
Ekkert stórt hægt að setja út á Erlend og hans teymi, það voru nokkrir soldið skrýtnir dómar og mögulega hefði Stjarnan átt að fá aukaspyrnu þegar Blikar skora alveg í lok leiksins en ekki hægt að kvarta mikið.




