SKÝRSLAN: Skagamaðurinn skoraði gegn ÍA á Akranesi
Hvað réði úrslitum?
Valsmenn voru heilt yfir betri í leiknum fannst mér, Tryggvi fékk dauðafæri til að skora í fyrri hálfleiknum en jafnt var í hálfleik, Valur komst yfir snemma í seinni og svo klikka Skagamenn á víti þar sem Valsarar bruna svo upp og skora, svona kórónar svolítið leik Skagamanna.
Bestu leikmenn
1. Aron Jóhannsson (Valur)
Mér fannst Aron Jó mjög öflugur í dag, bjó til færið fyrir Tryggva í fyrri hálfleik, skoraði fyrsta mark leiksins og sýndi þau gæði sem hann hefur að geyma á löngum köflum.
2. Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
Tryggvi var líklegast líflegasti leikmaður Vals, mörg upphlaup liðsins komu upp í gegnum hann, kom sér í gott færi með frábæru hlaupi sem var vel varið, lagði upp fyrsta markið á Aron og á stóran þátt í öðru markinu, iðinn við kolann allan tímann.
Atvikið
Jesper Juelsgard átti að fá dæmda á sig vítaspyrnu á 18. mínútu þegar hann reif Eyþór Wöhler niður í teignum áður en boltinn var sendur fyrir markið, hefðu Skagamenn fengið víti og mögulega komist yfir hefði sagan mögulega orðið allt önnur.
Hvað þýða úrslitin?
Skaginn er enn límdur við botninn en Valsarar spyrna sér nær Stjörnunni og KA í þessari baráttu um 3. sætið sem mögulega gefur Evrópusæti þegar upp er staðið.
Vondur dagur
Kaj Leó.
Dómarinn - 3,5
Sleppir augljósri vítaspyrnu á Jesper, það dregur teymið svakalega niður. Annars hefði teymið líklegast fengið hlutlausa fimmu þar sem það er hálf vonlaust að segja til um hvað er rétt og rangt í rauðum og ekki rauðum spjöldum í baráttu Hólmars og Eyþórs Wöhler, Skagamenn segja eitt, Valsarar hitt og það er erfitt að taka afstöðu.




