Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
Allt upp á 10,5
Þróttur R.
Þróttur R.
5 - 1
ÍBV
ÍBV
Andrea Rut Bjarnadóttir 10'1 - 01 - 118' Sandra VoitaneDanielle Julia Marcano 35'2 - 1Danielle Julia Marcano 44'3 - 1Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 67'4 - 1Freyja Karín Þorvarðardóttir 70'5 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Þróttarar geta alveg leyft sér að dreyma um Meistaradeildina

Hvað réði úrslitum?

Fyrstu 10-15 mínúturnar voru frekar jafnar en svo tóku Þróttarar yfir og unnu fyllilega verðskuldaðan sigur. Þróttarar voru búnar að kortleggja Eyjakonur vel og gestirnir áttu ekki sinn besta dag. Þróttur spilaði mjög flottan fótbolta og virkilega gaman að horfa á þeirra frammistöðu í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur)

Er að stíga upp úr meiðslum. Var stórkostlega í kvöld og áttu varnarmenn Eyjakvenna engin svör við þeim og þeirri tækni sem hún byr yfir. Frammistaða í hæsta klassa.

2. Katla Tryggvadóttir (Þróttur)

Katla var frábær á miðsvæðinu hjá Þrótti í kvöld og lagði upp tvö mörk, tvær stórkostlegar stoðsendingar hjá þessari efnilegu fótboltakonu.

Atvikið

Annað markið sem Þróttur skoraði. Stórkostlegt spil upp úr vörninni, Katla á svo geggjaða sendingu inn fyrir og Danielle klárar mjög vel. Mark í hæsta gæðaflokki.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur getur leyft sér að dreyma um Meistaradeildarkvöld í Laugardalnum á næsta ári. Þær eru bara þremur stigum frá Breiðabliki eftir þennan sigur og þessi lið eiga eftir að mætast í lokaumferð deildarinnar. Það verður vonandi bara úrslitaleikur þar sem allt er undir. Þetta þýðir að Eyjakonur verða ekki með í baráttunni, en þær geta byggt á fínum árangri í sumar. Þetta var ekki þeirra dagur og þær munu vilja svara því með sigri í næsta leik.

Vondur dagur

Það er í raun hægt að setja allt Eyjaliðið í þennan flokk. Olga Sevcova, þeirra besti leikmaður, sást ekki og það er ekki gott fyrir ÍBV þegar það gerist. Öll varnarlínan átti í miklu basli með Ollu og Daniella framarlega á vellinum.

Dómarinn - 9

Twana Khalid Ahmed dæmdi leikinn mjög vel. Fannst hann vera með vafaatriðin á hreinu og hafði góða stjórn. Lyfti gulum spjöldum þegar þau áttu að fara á loft. Vel gert hjá honum og hans teymi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.