SKÝRSLAN: Fyrsta jafnteflið kom gegn jafnteflisdrottningunum
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið fengu sín færi til að klára þennan leik, en þetta datt hvorugu megin. Báðir markverðir voru góðir í leiknum. Á heildina litið frekar sanngjörn úrslit held ég.
Bestu leikmenn
1. Sigrún Guðmundsdóttir (Augnablik)
Bossaði miðjuna hjá Augnablik og skoraði glæsilegt mark. Vienne Behnke, sem lék fremst á miðju hjá Fylki, átti erfitt uppdráttar og Sigrún á stóran þátt í því.
2. Mist Funadóttir (Fylkir)
Öflug í vinstri bakverðinum hjá Fylki. Var góð varnarlega og bauð upp á fína hluti sóknarlega. Báðir markverðir gerðu einnig tilkall hérna, flott frammistaða hjá þeim.
Atvikið
Þegar Karólína Jack kom inn á. Hennar fyrsti leikur í þrjú ár. Er búin að vera ótrúlega óheppin með meiðsli og var það virkilega skemmtileg stund þegar hún kom inn á í sínum fyrsta leik með Fylki.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir er í sjötta sæti og Augnablik í áttunda sæti. Bæði þessi lið verða áfram í Lengjudeildinni á næstu leiktíð. Fylkir hefur ekki tapað í ellefu leikjum í röð núna og það er klárlega eitthvað sem þær geta byggt á. Þær eru jafnteflisdrottningar deildarinnar - búnar að gera átta jafntefli - en þetta fyrsta jafntefli Augnabliks í sumar.
Vondur dagur
Júlía Katrín Baldvinsdóttir var mjög óheppin að skora sjálfsmark. Svo komst Vienna Behnke í engan takt við þennan leik. Á að vera lykilmaður í liði Fylkis en sást ekkert.
Dómarinn - 8
Vel dæmt heilt yfir. Spurning með vítaspyrnu undir restina en ég held að það hafi verið rétt að dæma ekkert þar.



