SKÝRSLAN: Víkingar skemmdu partýið í Kórnum og færðu það í Hafnarfjörðinn
Hvað réði úrslitum?
Það var mikið í húfi í þessum leik liðanna tveggja sem þekkjast svo vel eftir langt samstarf. Það héldu flest í Kórnum að HK væri að setja tóninn þegar þær skoruðu strax á 2. mínútu en svo var ekki. Víkingum óx ásmegin og þær væru sterkari aðilinn lengst af í leiknum. Þetta var ekki leikur margra opinna færa heldur fyrst og fremst baráttu og stemmningar og þar höfðu Víkingar betur.
Bestu leikmenn
1. Hulda Ösp Ágústsdóttir
Hulda var mjög drjúg fyrir Víkinga. Það var mikil vinnsla í henni og hún var ógnandi fram á við.
2. Tara Jónsdóttir
Tara gerði vel á miðjunni hjá Víkingum. Dreifði spilinu vel og átti nokkrar fínar sendingar fram á við, bæði úr opnum leik og föstum leikatriðum, sem sköpuðu usla.
Atvikið
Það var skrítin atburðarrás eftir rúmlega 20 mínútna leik. Víkingar unnu þá hornspyrnu en Henríetta, leikmaður HK, lá meidd eftir svo stöðva þurfti leikinn. Í það fór dágóður tími og loks var ákveðið að gera þyrfti skiptingu. Á meðan biðu Víkingar eftir að fá að taka hornið. Þegar öll augu voru á hliðarlínunni fjær stúkunni til að fylgjast með innáskiptingunni gerðist eitthvað í teignum og Hafdís Bára, leikmaður Víkings lá eftir. Víkingar voru mjög ósátt þarna og vildu meina að markvörður HK hefði slegið til Hafdísar. Hvað nákvæmlega gerðist verður að koma í ljós þegar myndbandsupptökur eru skoðaðar en þetta atvik hafði áhrif á stemmninguna í leiknum í framhaldinu og konum (og körlum á hliðarlínunni) var heitt í hamsi.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði FH og Tindastóll fagna þessum úrslitum. Hvorki HK né Víkingar geta náð FH-ingum sem eru búnar að tryggja sér sæti í efstu deild að ári, með 40 stig. Tindastóll jók forskot sitt úr einu upp í 4 stig í 2. sætinu og hefur hitt úrvalsdeildarsætið í höndum sér þegar tveir leikir eru eftir. HK er í 3. sæti með 33 stig og Víkingur í 4. sæti með 32 stig. Liðin þurfa á kraftaverki að halda til að til að komast upp um deild.
Vondur dagur
Unglingalandsliðskonan Henríetta Ágústsdóttir er lykilmaður á miðjunni hjá HK og hún þurfti að fara útaf vegna meiðsla strax á 20. mínútu og það er alltaf ömurlegt. Það riðlaði leik HK-inga töluvert og Víkingar gengu á lagið. Vonum að miðjumaðurinn efnilegi verði fljót að jafna sig.
Dómarinn - 7,5
Þetta var erfiður leikur að dæma og spennustigið hátt hjá leikmönnum, þjálfurum og stuðningsmönnum. Atriðið sem nefnt er í atvikinu fór framhjá flestum á vellinum en annars voru engin stór atriði sem maður klórar sér í kollinum yfir eftir leik. Það var nóg af aukaspyrnum, meiðslastoppum og hinu og þessu að eiga við og Soffía og aðstoðarmenn hennar gerðu vel við krefjandi aðstæður.



