Fotbolti.net
@unnarjoUnnar Jóhannsson
FH
FH
Lengjudeild kvenna
Kaplakrikavöllur
Rennandi blautur völlur
0 - 0
Fylkir
Fylkir
Dómari: Ásgeir Viktorsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Leikur hinna glötuðu færa

Hvað réði úrslitum?

Hvorugt liðið náði að nýta færin sem í boði voru. FH-ingar fengu fleiri sénsa en inn vildi boltinn ekki. Ótrúlegt markalaust jafntefli niðurstaðan

Bestu leikmenn

1. Tinna Brá Magnúsdóttir

Fullkominn leikur hjá henni í Fylkismarkinu í dag. Varði allt sem á markið kom og greip vel inn í þegar á þurfti að halda.

2. Sigríður Lára Garðarsdóttir

Ótrúlega öflug inn á miðjunni hjá FH, vinnur vel varnarlega og með góðar sendingar sóknarlega.

Atvikið

Erfitt að gera upp á milli í færaklúðri FH en á 73 komu líklega bestu færin í sömu sókninni. Fyrst Elísa og svo Berglind.

Hvað þýða úrslitin?

FH-ingar berjast við Tindastól í lokaumferðinni um efsta sæti deildarinnar. Fylkisstelpur halda áfram að gera jafntefli og eru um miðja deild

Vondur dagur

Sóknarlína FH í heild sinni fyrir að ná ekki að skora og ætla að taka Telmu Hjaltalín út fyrir sviga og gefa henni þennan vafasama heiður.

Dómarinn - 8,5

Var með allar ákvarðanir á hreinu, fór lítið fyrir honum sem er alltaf jákvætt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.