Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta-deild kvenna
Meistaravellir
Grenjandi rigning en enginn vindur
KR
KR
0 - 6
Valur
Valur
0 - 16' Mist Edvardsdóttir 0 - 217' Ásdís Karen Halldórsdóttir 0 - 344' Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir0 - 451' Ásdís Karen Halldórsdóttir 0 - 568' Þórdís Elva Ágústsdóttir0 - 673' Elín Metta Jensen
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Göngutúr í rennandi blautum garði

Hvað réði úrslitum?

Valur er bara langbesta liðið á landinu þessa stundina. Þær eru löngu búnar að finna taktinn og það er gríðarlega erfitt að stöðva þær. Valur er á toppnum og KR er á botninum, og það sást á leik liðanna í dag. KR átti sín augnablik en náði ekki að nýta þau nægilega vel.

Bestu leikmenn

1. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)

Eitt mark og þrjár stoðsendingar. Er búin að vera vaxandi á tímabilinu og er núna í algjöru lykilhlutverki.

2. Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)

Var í landsliðshópnum og hefur bara sýnt það með frammistöðu sinni í sumar að þar á hún heima. Mist Edvardsdóttir gerði líka tilkall, en það var ekki mjög mikið að gera hjá henni í vörninni í þessum leik.

Atvikið

Fyrsta markið sem Mist Edvardsdóttir skoraði eftir ótrúlegt hlaup er eftirminnilegt. Svo gerði Þórdís Elva geggjað mark sem hlýtur að vera eitt af mörkum tímabilsins.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta var ansi góður dagur fyrir Val, en Breiðablik gerði jafntefli í Vestmannaeyjum. Því er Valur með sex stiga forskot þegar fjórar umferðir eru eftir. KR er á botninum, sex stigum frá öruggu sæti, en þær halda enn í vonina.

Vondur dagur

Rasamee átti erfitt uppdráttar í byrjun. Hún er með mikil gæði en fann sig ekki. Það er líklega ósanngjarnt að taka einhvern einn samt út úr KR-liðinu. Þegar þú tapar 6-0 þá er líklega hægt að segja að allir hafi átt mjög vondan dag í tapliðinu.

Dómarinn - 7

Heilt yfir vel dæmdur leikur hjá Jóhanni. Ég get ekki metið rangstöðumörkin hjá KR úr þeirri stöðu sem ég var á vellinum. Það er kannski hægt að skoða það aftur, en sigurinn var mjög sanngjarn samt sem áður og það hefði örugglega ekki breytt öllu þó KR hefði náð inn einu eða tveimur mörkum - þannig var allavega tilfinningin í þessum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.