SKÝRSLAN: Óskar skoraði en það var Ísak Andri sem stal sviðsljósinu
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar fengu svo sannarlega færi en Stjörnumenn voru mun betri í að nýta þau.
Bestu leikmenn
1. Ísak Andri Sigurgeirsson (Stjarnan)
Var kosin efnilegasti leikmaður deildarinnar af öðrum leikmönnum og á það fyllilega skilið. Sýndi það í dag af hverju leikmenn kusu hann það. Kæmi ekki á óvart ef hann fer í atvinnumennsku í vetur.
2. Henrik Máni B. Hilmarsson (Stjarnan)
Kom inn í hjarta varnarinnar og stóð sig mjög vel. Hann og Sindri voru að ná vel saman.
Atvikið
Seinna mark Stjörnunnar. Óskar Örn, sem er goðsögn hjá KR, skoraði það. Hefur skorað þau þónokkur á þessum velli, en yfirleitt hefur það verið í búningi KR. Ísak Andri, sem getur orðið einn af mönnum framtíðarinnar í íslenskum fótbolta, lagði upp markið á Óskar, sem er einn besti leikmaður í sögu efstu deildar. Fagnaði ekki af virðingu við sitt gamla félag en þetta var skemmtilegt augnablik af mörgu leyti.
Hvað þýða úrslitin?
KR endar í fjórða sæti og Stjarnan í fimmta sæti. Þessir leikir voru í lokaumferð deildarinnar.
Vondur dagur
Sigurður Bjartur Hallsson. Var að koma sér í stöður og færi en gat ekki komið boltanum í markið. Svekkjandi dagur fyrir hann.
Dómarinn - 7
Ekkert mjög erfiður leikur að dæma en Helgi Mikael gerði sitt vel.




