Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
Besta-deild kvenna
Origo völlurinn
Valur
Valur
1 - 1
Selfoss
Selfoss
Bryndís Arna Níelsdóttir 49'1 - 01 - 159' Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Selfoss sótti stig á Origo

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var ekki sá skemmtilegasti sem maður hefur séð og hvorugt liðið að spila einhvern frábæran fótbolta. Valsarar sóttu mikið en Selfyssingar stóðu vörnina með prýði og komu svo inn marki eftir horn.

Bestu leikmenn

1. Ásdís Karen Halldórsdóttir

Satt að segja var erfitt að velja þetta. Ekki vegna þess að allir voru svo góðir heldur var bara enginn sem átti stjörnuleik. Ásdís Karen var samt sem áður nokkuð spræk og var kannski sú sem ógnaði mest og gerði sig hvað líklegasta. Hún átti líka annað sláarskotið sem leiddi til marksins. Ágætis dagur á skrifstofunni bara.

2. Þórdís Elva Ágústsdóttir

Þórdís var ásamt Ásdísi hvað líflegust og átti einmitt hitt sláarskotið sem leiddi að markinu. Hún var tekin út af eftir u.þ.b. klukkutíma leik. Ef hún hefði spilað eitthvað lengur hefði hún líklega verið maður leiksins en svona er þetta harður heimur.

Atvikið

Jöfnunarmark Selfyssinga. Markið var ekki það fallegasta og enginn alveg með það á hreinu hver skoraði það en það var mikilvægt og tryggði Selfossi sitt fyrsta stig í mótinu. Eftir þetta lifnaði leikurinn líka aðeins við og það fór að hitna aðeins í kolunum þrátt fyrir að leikurinn hafi aldrei farið út í einhverja vitleysu. Ætla líka að nefna mögulega vítið sem að Selfoss átti að fá í lokinn, það hefði getað orðið stórt ef Guðmundur hefði dæmt það.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss fær sinn fyrsta punkt á töfluna og Valsarar eru með 7 stig

Vondur dagur

Ætla að setja þetta á fremstu línur hjá báðum línum einungis vegna þess hvað það var ótrúlega mikið að gera hjá mönnunum á línunni að flagga þær rangstæðar. Fullmikið af rangstæðum í einum leik fyrir minn smekk, hvað þá í deild þeirra Bestu!

Dómarinn - 7

Set solid sjöu á Guðmund í dag. Hann sá vel um þetta og mér fannst hann koma í veg fyrir það að leikurinn færi út í einhverja vitleysu. Það er vert að minnast á það að Selfyssingar hefðu mögulega átt að fá víti í lok leiks þegar Málfríður virtist fá hann í hendina. Undirrituð er ekki búin að sjá atvikið aftur þannig að það er erfitt að segja til um það en stúkan og leikmenn Selfoss voru á því að um hendi hefði verið að ræða. Ef að þetta var rangur dómur hjá honum snögglækkar einkunnin og ég verð að gefa honum fall af því að þetta var risastór ákvörðun sem var þá röng.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.