Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
10 gráður og logn, gerist ekki betra
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 1
Stjarnan
Stjarnan
0 - 140' Jasmín Erla IngadóttirSæunn Björnsdóttir 54'1 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Þróttarar komnir á toppinn eftir frábæra frammistöðu

Hvað réði úrslitum?

Frammistaða Stjörnunnar í seinni hálfleik. Stjarnan átti örfá skot í seinni hálfleik en annars voru Þróttarar með Stjörnukonur í köðlunum í seinni hálfleik. Þróttur fengu færin í seinni hálfleik en þær geta verið ósáttar við það að hafa ekki klárað leikinn. Ég veit ekki hvað gekk á í hálfleik hjá Stjörnunni en þær voru klárlega sáttari en Þróttararnir í lok leiks.

Bestu leikmenn

1. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir

Var bara frábær á miðsvæðinu eins og alltaf. Átti líka stórkostlega sendingu á Jasmín í marki Stjörnunnar í leiknum. Meiddist eitthvað í ristinni í seinni hálfleik en harkaði í gegnum leikinn og steig valla feilspor í kvöld. Gunnhildur fær að vera maður leiksins því hún var langbesti leimaðurinn inn á vellinum í kvöld og án hennar hefðu Stjörnukonur tapað leiknum.

2. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir

Var að skapa færi allan leikinn og var mjög lífleg. Það hefði verið auðvelt að setja Sæunni hérna en ég vel Ólöfu þar sem hún var allt í öllu í sóknarleik Þróttara.

Atvikið

Færið sem Freyja fær á 77. mínútu var færi sem framherji verður að taka og hvað þá í svona leik. Inn vildi boltinn ekki og hafnaði í stönginni en það er að mínu mati atvikið sem stendur upp úr þessum leik. Freyja kom inn með mikinn kraft og innkoman hennar var bara hreint út sagt geggjuð. Hún átti skilið að skora að minnsta kosti eitt mark en hún var bara óheppin í færinu sem hún fékk í lok leiks.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar fara á toppinn eftir að Valskonur misstigu sig í kvöld. Þær geta bara verið sáttar með þessa byrjun og hún lofar mjög góðu. Stjörnukonur sitja þó í fimmta sæti eftir þessa 3. umferð en þær eiga Val á heimavelli í næsta leik sem verður áhugaverður leikur.

Vondur dagur

Stjarnan í seinni hálfleik. Stjarnan gátu lítið í seinni hálfleik og ég tel það vera ástæðan fyrir því að þær missa niður forystuna sem þær voru með í hálfleik. Sóknarleikur Stjörnunnar var til skammar í seinni hálfleik og varnarmennirnir voru mjög kærulausir á boltanum í uppspilinu. Þær sem standa upp úr hjá Stjörnunni í kvöld voru Jasmín og Gunnhildur. Þær voru báðar mjög góðar nánast allan leikinn en það var ekki mikið að frétta í kringum þær.

Dómarinn - 9

Það var ekki mikið að gera fyrir Arnar í kvöld. Hann og hans aðstoðarmenn dæmdu bara að mínu mati leikinn mjög vel. Það var gott flæði í leiknum og ekkert verið að stoppa leikinn af óþörfu. Engin spjöld samt í dag og það veldur því að hann fær 9 en ekki 10.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.