Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetEyþór Daði Kjartansson
Besta-deild kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
1 - 2
Tindastóll
Tindastóll
Olga Sevcova 2'1 - 01 - 116' Melissa Alison Garcia1 - 271' Melissa Alison Garcia
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

SKÝRSLAN: Mikilvægur sigur Tindastóls í Eyjum

Hvað réði úrslitum?

Þetta var nokkuð jafn leikur en ÍBV tókst ekki að skapa sér nógu mikið af færum og Tindastóll nýtti sín færi vel.

Bestu leikmenn

1. Gwendolyn Mummert

Stoppaði gjörsamlega allt sem kom á vörn Tindastóls í dag. Leikmaður sem ég hafði ekki heyrt um fyrr en í dag, en ef þetta er standardinn þá eru Stólarnir í góðum málum. Hún á síðan ''game winning tackle'' í öðru marki Tindastóls sem fullkomnaði leikinn hjá henni.

2. Melissa Alison Garcia

2 mörk, bæði virkilega vel kláruð. Var að ná vel saman með Murielle og var virkilega góð, sérstaklega í fyrri hálfleik.

Atvikið

Rétt fyrir annað mark Tindastóls á Olga sendingu á Kristín Ernu sem þræðir Olgu í gegn og hún nánast komin ein í gegn. Þá kemur hins vegar Gwendolyn Mummert á fleygiferð og tæklar boltann frá Olgu. Eftir það fer boltinn fram og Murielle kemur boltanum á Melissu sem klárar vel.

Hvað þýða úrslitin?

Tindastóll heldur áfram stigasöfnun sinni sem er búin að vera góð á tímabilinu. ÍBV eru pottþétt svekktar að tapa 3 stigum gegn liði sem þær reiknuðu líklegast við að vinna á heimavelli.

Vondur dagur

Holly O'Neil var ekki á sínum degi. Átti mörg skrýtin og léleg skot og skrýtið að hún hafi klárað leikinn.

Dómarinn - 4

Engin afdrifarík mistök en samt sem áður var dómaratríóið í heild sinni ekki gott. Það var oft sem dómarar bentu í sitthvora áttina og virkuðu mjög óöruggir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.