Leik lokið!
Sanngjarn sigur hjá Breiðablik og skýrslan kemur inn eftir smá
90. mín
Clara með skot yfir markið
90. mín
Sigríður með skot fyrir utan teig en það er beint á Telmu
89. mín
Boltinn í slánna!
Bolti í gegn frá Breiðablik en Idun er vel vakandi og neglir boltanum yfir allan völlinn og á Katrínu sem á skot í slánna og niður á línunna og út
88. mín
InnÞóra Jónsdóttir
ÚtJimena López Fuentes
85. mín
InnBirta Georgsdóttir
ÚtAndrea Rut Bjarnadóttir
85. mín
InnClara Sigurðardóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
83. mín
Sigríður fær boltann inná teignum og boltinn skoppar rétt áður en að hún skítur og skotið hátt yfir
80. mín
Rétt yfir
Eva fær boltann og leikur á einn varnarmann Breiðabliks og á skot sem er rétt yfir markið
78. mín
Eva í ágætri stöðu en skotið er yfir
74. mín
InnKatrín Ágústsdóttir
ÚtEmelía Óskarsdóttir
74. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtUnnur Dóra Bergsdóttir
71. mín
Rétt framhjá
Andrea Rut setur boltann hárfínt framhjá eftir sendingu frá Hafrúnu.
69. mín
Enn ein rangstaðan á Selfoss.
66. mín
InnHildur Þóra Hákonardóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
Enn verið að huga að Karitas utan vallar.
65. mín
Hornspyrna frá Unni Dóru endar með skoti frá Grace í varnarmann og Blikar geysast upp völlinn en Agla á þunga snertingu sem stoppar sóknina.
64. mín
Karitas liggur og ef hún liggur hefur eitthvað komið fyrir.
63. mín
Sif bregður sér yfir miðju og á skot sem Telma ver vel.
62. mín
Eva Lind með skot vel framhjá.
61. mín
InnBergþóra Sól Ásmundsdóttir
ÚtKatrín Ásbjörnsdóttir
60. mín
Eva Lind lífleg á vinstri kantinum en Toni vandanum vaxinn.
58. mín
InnGuðrún Þóra Geirsdóttir
ÚtÍris Una Þórðardóttir
Bjössi reynir að hrista upp í hlutunum.
57. mín
Agla María með lúmska sendingu sem er svo lúmsk að hún rennur bara í hendur Idunþ
54. mín
Eva Lind með hættulega sendingu inn að markteig en Toni stingur sér fram fyrir Emelíu.
53. mín
Agla rangstæð.
50. mín
Jimena með aukaspyrnu sem Barbára nær að skalla en vel framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Rólegar lokamínútur fyrri hálfleiks. Sanngjörn staða í hálfleik, gestirnir mun ákveðnari.
39. mín
Emelía liggur eftir samskipti við Toni en ekkert dæmt. Dómarinn illa staðsettur þarna.
35. mín
MAAAARK!
Barbára Sól Gísladóttir (sjm)
Hornaspyrna frá Öglu Maríu hefur viðkomu í leikmönnum beggja liða áður en hann hrekkur af Barbáru í eigið mark.34. mín
Emelía rangstæð, þetta var tæpt en rétt.
32. mín
Andrea með góða fyrirgjöf en Hafrún er tæplega 10 cm of stutt í þennan bolta.
31. mín
Aukaspyrna frá Jimena endar í góðri skyndisókn Blika en sending Öglu Maríu yfir teiginn og aftur fyrir.
30. mín
Stöðubarátta en lítið um færi.
25. mín
Blikar sækja en Selfyssingar verjast vel.
22. mín
Karitas með svipað sendingu fyrir mark Selfyssinga.
20. mín
Selfyssingar að hressast
Eva með hættulega sendingu fyrir en boltinn siglir aftur fyrir.
18. mín
Gult spjald
Taylor Marie Ziemer
11. mín
MAAAARK!
Andrea Rut Bjarnadóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )
Góð útfærsla á hornspyrnu, Selfyssingar bjuggust ekki við þessu og staðan orðin 2-0 fyrir Breiðablik3. mín
MAAAARK!
Hafrún Rakel Halldórsdóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )
Döpur vörn hjá heimakonum og Breiðablik ekki lengi að ná forystunni.1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Leikur hafinn
Tæknin að stríða okkur
en leikurinn hófst stundvíslega klukkan 19:15.
Fyrir leik
Spáin
Selma Dögg varð fyrir valinu að spá fyrir sjöttu umferð Bestu-deildarinnar en hún spáir 0-2 sigri Breiðabliks og segir:
"Breiðablik þarf að sýna meiri gæði eftir síðasta leik í deildinni. Birta Georgs setur tvö mörk enda er hún geggjuð."
Situr á vinstri hönd
"Breiðablik þarf að sýna meiri gæði eftir síðasta leik í deildinni. Birta Georgs setur tvö mörk enda er hún geggjuð."

Situr á vinstri hönd
Fyrir leik
Gengi liðanna
Breiðablik hefur gegnið svona ágætlega og eru með 9 stig eftir 5 leiki og unnu síðast gegn FH á Kópavogsvelli en þar unnu þær 3-2 eftir að hafa lent 0-1 undir en mörk Breiðabliks komu frá Hafrúnu, Hildi og Andreu.
Selfoss hefur ekki byrjað þetta tímabil vel og eru með aðeins 4 stig í fimm leikjum eftir sigur á Tindastól og sterku jafntefli gegn Val en töpuðu gegn Keflavík 0-1 í síðustu umferð þar sem Linli Tu skoraði eina mark leiksins.

Selfoss hefur ekki byrjað þetta tímabil vel og eru með aðeins 4 stig í fimm leikjum eftir sigur á Tindastól og sterku jafntefli gegn Val en töpuðu gegn Keflavík 0-1 í síðustu umferð þar sem Linli Tu skoraði eina mark leiksins.

Fyrir leik
Sjötta umferð Bestu deild kvenna
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Selfoss og Breiðabliks hér í sólinni á Jáverk-vellinum



