SKÝRSLAN: Selfoss ber sigur úr býtum eftir klaufalegt sjálfsmark Þróttara
Hvað réði úrslitum?
Selfoss voru tilbúnir frá fyrstu mínútu og Þróttarar tóku sér of langan tíma að koma sér í gang en voru betri í seinni hálfleik á móti 10 Selfyssingum
Bestu leikmenn
1. Adrian Sanchez (Selfoss)
Var frábær allan leikinn og potaði inn fyrsta markinu snemma í leiknum og steig varla feilspor í vörn Selfoss og á hrós skilið
2. Izaro Abella Sanchez (Þróttur)
Kom inná og kveikti á Þrótt í sóknarleiknum og varnarmenn Selfoss áttu í brasi með að stoppa hann
Atvikið
Sjálfsmark Þróttara sem reyndist vera sigurmarkið var eiginlega ólýsanlegt og mjög klaufalegt þar sem lítil sem engin hætta var á að Selfoss myndi skora
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss ennþá í 4. sæti og eru komnir með 9 stig eftir 5 leiki og líta vel út en Þróttarar sitja í 8. sæti með 4 stig
Vondur dagur
Enn og aftur eru Selfyssingar að fá rautt spjald fyrir eitthvað óþarfa brot og eru að fá þriðja rauða spjaldið í síðustu tveim heimaleikjum
Dómarinn - 9/10
Var frábær allan leikinn og hélt góðri línu allan tímann og lét engar dýfur eða neitt slá sig út af laginu


