Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Lengjudeild kvenna
Würth völlurinn
Geggjað fótboltaveður. Allir á völlinn!
Fylkir
Fylkir
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 137' Bergdís SveinsdóttirGuðrún Karítas Sigurðardóttir 86'1 - 11 - 294' Nadía Atladóttir
Dómari: Sigurður Schram

SKÝRSLAN: Víkingar halda áfram að vinna

Hvað réði úrslitum?

Klaufagangurinn í vörn Fylkis var mikill í báðum mörkum Víkinga. Bergdís var ein á auðum sjó þegar hún skallaði boltann í netið eftir 37 mínútur og það sama má segja um sigurmarkið hjá Nadíu þar sem Fylkiskonur eru of seinar í alla bolta.

Bestu leikmenn

1. Nadía Atladóttir

Átti geggjaðan leik. Vann leikinn fyrir Víking í lokin og hætti aldrei að hlaupa og berjast. Fyrirliðinn var magnaður í dag.

2. Guðrún Karítas Sigurðardóttir

Skoraði fyrir Fylki á 86. mínútu og var allt í öllu fyrir Fylki. Ég hreinlega veit ekki hvar Fylkir væru staddir án hennar en hún hefði sennilega verið maður leiksins með yfirburðum ef Nadía hefði ekki skoraði í lokin. Vallarþulur Fylkis valdi hana einmitt sem maður leiksins

Atvikið

Markið hjá Nadíu í lokin. Hvað annað? Algjörlega gegn gangi leiksins og skilur liðin að. Algjör dramatík!

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar fara á toppinn með fullt hús stiga eftir 5 umferðir en Fylkiskonur sitja eftir í fjórða sæti.

Vondur dagur

Varnarlína Fylkis. Erfitt að velja einhvern einn leikmann þar sem varnarleikur Fylkiskvenna var ekki upp á marga fiska. Bæði mörk Víkinga voru svokölluð skítamörk eins og Gunnar Magnús, þjálfari Fylkis, orðaði það.

Dómarinn - 10

Sigurður og hans teymi voru geggjaðir í dag. Voru með allar ákvarðanir réttar og leyfðu leiknum að fljóta. Stærsta ákvörðun þeirra félega í leiknum var sennilega þegar þeir tóku mark af Fylki í miðjum síðari hálfliek. Mín skoðun er sú að boltinn fór ekki inn og þar að leiðandi rétt ákvörðun.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.