Bose-bikarinn Úrslit
Stjarnan
LL
1
3
3
Víkingur R.
Úrslit Lengjubikarsins
Fylkir
LL
8
7
7
KR

Keflavík
0
1
Stjarnan

0-1
Jasmín Erla Ingadóttir
'24
16.06.2023 - 20:00
HS Orku völlurinn
Mjólkurbikar kvenna
Aðstæður: Frábærar í einu orði sagt. Meira að segja grasið virkar nokkuð fallegt.
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Áhorfendur: 72
Maður leiksins: Jasmín Erla Ingadóttir
HS Orku völlurinn
Mjólkurbikar kvenna
Aðstæður: Frábærar í einu orði sagt. Meira að segja grasið virkar nokkuð fallegt.
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Áhorfendur: 72
Maður leiksins: Jasmín Erla Ingadóttir
Byrjunarlið:
1. Vera Varis (m)
Sigurrós Eir Guðmundsdóttir
('74)
('74)
Caroline Mc Cue Van Slambrouck
2. Madison Elise Wolfbauer
6. Mikaela Nótt Pétursdóttir
9. Linli Tu
10. Dröfn Einarsdóttir
('74)
('74)
11. Kristrún Ýr Holm
14. Alma Rós Magnúsdóttir
('87)
('87)
17. Júlía Ruth Thasaphong
('55)
('55)
24. Anita Lind Daníelsdóttir
- Meðalaldur 29 ár
Varamenn:
31. Esther Júlía Gustavsdóttir (m)
8. Anita Bergrán Eyjólfsdóttir
13. Kristrún Blöndal
('87)
('87)
13. Sandra Voitane
('55)
('55)
19. Þórhildur Ólafsdóttir
('74)
('74)
26. Amelía Rún Fjeldsted
77. Elfa Karen Magnúsdóttir
('74)
- Meðalaldur 21 ár
('74)
Liðsstjórn:
Jonathan Glenn (Þ)
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir (Þ)
Þorgerður Jóhannsdóttir
Örn Sævar Júlíusson
Luka Jagacic
Sigurður Hilmar Guðjónsson
Gul spjöld:
Anita Lind Daníelsdóttir ('14)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan í undanúrslit
Eitt mark dugði til í þetta sinn. Stjarnan skrefi nær Laugardalsvelli.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
Eitt mark dugði til í þetta sinn. Stjarnan skrefi nær Laugardalsvelli.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín
Stjarnan haldið boltanum á vallarhelmingi Keflavíkur í að vera tvær mínútur og fengið hvert innkastið á eftir öðru. Þær eru á leið í undanúrslit þar sem þær munu taka á móti liði Breiðabliks.
93. mín
Betsy Hasset í dauðafæri en Mikaela Nótt gerir gríðarlega vel í að vinna sig framfyrir hana og komast fyrir skot hennar.
90. mín
Uppbótartími er að lágmarki fimm mínútur.
Stjarnan virðist hafa þetta í hendi sér en enn er tími fyrir heimakonur.
Stjarnan virðist hafa þetta í hendi sér en enn er tími fyrir heimakonur.
85. mín
Áhorfendur á HS orkuvellinum í dag eru 72. Verð að kalla það gífurleg vonbrigði.
En risa hrós á þá 72 sem mættu.
En risa hrós á þá 72 sem mættu.
75. mín
Madison með hörkuskot að marki eftir fína sókn Keflavíkur en Auður vel staðsett og grípur.
68. mín
Málfríður og Dröfn renna sér báðar í boltann og lenda í samstuði, Dröfn stendur strax á fætur en Málfríður liggur eftir og kveinkar sér. Virðist hafa fengið þó nokkuð þungt högg á rifbeinin og finnur vel fyrir því.
66. mín
Verið heldur rólegt yfir þessu síðustu mínútur, bæði lið vissulega að reyna að skapa sér eitthvað en orðið lítið ágengt.
61. mín
Langur bolti inn á teig Keflavíkur úr aukaspyrnu sem Vera ætlar út í en nær ekki til. Boltinn af varnarmanni hárfínt framhjá stönginni fjær. Heimakonur heppnar þarna.
58. mín
Heimakonur að vakna
Alma Rós í hörkufæri eftir misheppnað skot Linli Tu en nær ekki góðu skoti og setur boltann framhjá markinu.
56. mín
Linli Tu sækir horn fyrir Keflavík.
Caroline með skallann en af varnarmanni og afturfyrir, annað horn.
Caroline með skallann en af varnarmanni og afturfyrir, annað horn.
53. mín
Gyða Kristín með stórhættulegan bolta fyrir markið frá vinstri en Kristrún Ýr bjargar á síðustu stundu með góðri tæklingu.
51. mín
Í hálfleik var dregið í undanúrslit, sigurliðið úr þessum leik fær heimaleik gegn Breiðablik, í hinum undanúrslitaleiknum mætir FH svo Lengjudeildarliði Víkings.
49. mín
Stjörnukonur sterkari hér í upphafi síðari hálfleiks. Engin færi þó litið dagsins ljós.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér í Keflavík, Stjarnan leiðir eftir gott skallamark frá Jasmín Erlu og verður það að teljast sanngjarnt.
45. mín
Lítið sem ekkert gerst síðustu mínútur og líkt og bæði lið séu að bíða þess að komast inn í hálfleikinn.
Þurfa þó að bíða í mínútu til viðbótar.
Þurfa þó að bíða í mínútu til viðbótar.
38. mín
Gestirnir með tögl og haldir á vellinum þessa stundina, skipulagðar og agaðar í sínum leik og gefa Keflavík ekkert færi á að halda í boltann.
24. mín
MARK!
MARK!Jasmín Erla Ingadóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Heiða Ragney Viðarsdóttir
Stoðsending: Heiða Ragney Viðarsdóttir
Heiða Ragney lyftir boltanum snyrtilega inn á teiginn a milli miðvarða Keflavíkur þar sem Jasmín Erla mætir og skallar boltann í netið óverjandi fyrir Veru í markinu.
Set samt spurningarmerki við varnarleik Keflavíkur þarna, fannst svona við fyrstu sýn að miðverðir Keflavíkur hefðu geta gert talsvert betur.´
Set samt spurningarmerki við varnarleik Keflavíkur þarna, fannst svona við fyrstu sýn að miðverðir Keflavíkur hefðu geta gert talsvert betur.´
Fyrsta markið er komið í Keflavík. @Jasminerlaa kemur Stjörnunni yfir eftir slétta 23 mínútur. @mjolkurbikarinn pic.twitter.com/REFnDJWZRn
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) June 16, 2023
21. mín
Dröfn Einarsdóttir í frábæru færi eftir langa sendingu inn fyrir vörn Stjörnunar, Auður virðist vera á leið í skógarhlaup en Dröfn setur boltann i hana og gestirnir koma boltanum frá.
Átti Dröfn ekki hreinlega að gera betur þarna? Tökum þó ekkert af Auði að hafa náð að klukka þennan bolta.
Átti Dröfn ekki hreinlega að gera betur þarna? Tökum þó ekkert af Auði að hafa náð að klukka þennan bolta.
20. mín
Mikið klafs í teig Keflavíkur eftir sókn Stjörnunar, boltinn skoppar í markteignum en heimakonur koma boltanum frá en þó ekki langt.
16. mín
Heiða Ragney Viðarsdóttir reynir skotið af 20 metrum eftir að hafa unnið boltann við teig Keflavíkur. Ágætis hugsun en boltinn talsvert yfir markið.
14. mín
Gult spjald: Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
Gult spjald: Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
Of sein í tæklingu úti við endalínu hægra megin og uppsker gult. Fyrirtaks staður til fyrirgjafar fyrir Stjörnuna.
11. mín
Jasmín aftur að ógna, með flottan snúning við hægra vítateigshorn og skot en Vera vel á verði og ver.
9. mín
Jasmín fær góða sendingu inn fyrir vörn Keflavíkur en fyrsta snertingin svíkur hana og boltinn í fang Veru.
8. mín
Þetta hefur verið nokkuð opið hér í upphafi, bæði lið náð álitlegum upphlaupum en þennan fræga herslumun hefur vantað upp á að skapa almennileg færi.
5. mín
Alma Rós með laglega takta út á hægri vængnum og snýr af sér varnarmann, kemur boltanum fyrir markið en Stjörnukonur hreina boltann frá.
2. mín
Dómarar
Það er kannski ekki úr vegi að kynna þriðja liðið hér á vellinum í dag sem sér um að allt fari sómasamlega fram.
Ásmundur Þór Sveinsson er aðaldómari kvöldsins, honum til aðstoðar eru Guðni Freyr Ingvason og Eydís Ragna Einarsdóttir. Tomasz Piotr Zietal er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Ólafur Ingi Guðmundsson.

Fyrir leik
Liðin ganga til vallar og leikurinn fer að hefjast.
Vonumst að sjálfsögðu eftir góðum og skemmtilegum leik líkt og alltaf.
Vonumst að sjálfsögðu eftir góðum og skemmtilegum leik líkt og alltaf.
Fyrir leik
Víkingar þriðja liðið í undanúrslit.
Leik Víkings og Selfoss var að ljúka þar sem Lengjudeildarlið Víkings sló út Bestu deildar lið Selfoss. Nú er það bara spurningin hvort að Keflavík eða Stjarnan bætist við þau þrjú lið sem þegar hafa tryggt sig áfram.

Fyrri viðureignir
Þessi lið hafa aldrei áður mætt hvort öðru í bikarkeppni KSÍ ef mark er takandi og tölfræði KSÍ. Liðin hafa þó mæst alls 17 sinnum í efstu deild frá aldamótum og hallast tölfræðin heldur til Stjörnunar sem hefur haft sigur í níu leikjum, Keflavík hefur unnið fimm og þremur hefur lokið með jafntefli. Markatala er svo 39-26 Stjörnunni í vil.
Fyrir rétt rúmlega hálfum mánuði mættust liðin í Bestu deildinni á Samsungvellinum í Garðabæ. Þar hafði Stjarnan nokkuð þægilegan 3-0 sigur þar sem Anna María Baldursdóttir, Jasmín Erla Ingadóttir og Aníta Ýr Þorvaldsdóttir sáu um markaskorun.

Keflavík kom líkt og Stjarnan inn í keppnina í 16 liða úrslitum og mætti þar liði Þór/KA. Keflavíkurkonur tryggðu sér þar farseðill í 8 liða úrslit með 2-0 sigri þar sem Sandra Voitane og Madison Elise Wolfbauer skoruðu mörk Keflavíkur í síðari hálfleik.

Stjarnan hóf keppni í Mjólkurbikarnum þetta árið í 16 liða úrslitum líkt og önnur lið úr Bestu deildinni. Þar fór liðið í heimsókn á Seltjarnarnes og mætti Lengjudeildarliði Gróttu.
Heimakonur í Gróttu komust þar yfir snemma leiks en sú gleði reyndist skammvinn og að endingu urðu lokatölur 9-1 fyrir Stjörnuna þar sem Úlfa Dís Kröyer gerði fjögur af mörkum Stjörnunnar.
Heimakonur í Gróttu komust þar yfir snemma leiks en sú gleði reyndist skammvinn og að endingu urðu lokatölur 9-1 fyrir Stjörnuna þar sem Úlfa Dís Kröyer gerði fjögur af mörkum Stjörnunnar.
Fyrir leik
Mjólkurbikarkvöld
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Stjörnunar í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.
Tveimur leikjum er þegar lokið í þessum 8 liða úrslitum en í gær tryggðu lið Breiðabliks og FH inn í undanúrslit með sigrum á Þrótti og ÍBV. Tveir leikir fara svo fram í kvöld, Víkingar leika gegn liði Selfoss en sá leikur er þegar hafinn og hér í Keflavík taka heimakonur á móti Stjörnunni líkt og áður segir.

1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
5. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
5. Eyrún Embla Hjartardóttir
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
('68)
('68)
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir
24. Málfríður Erna Sigurðardóttir
26. Andrea Mist Pálsdóttir
('83)
- Meðalaldur 26 ár
('83)
Varamenn:
83. Erin Katrina Mcleod (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
('83)
('83)
11. Betsy Doon Hassett
('68)
('68)
13. Ólína Ágústa Valdimarsdóttir
14. Snædís María Jörundsdóttir
20. Aníta Ýr Þorvaldsdóttir
33. Klara Mist Karlsdóttir
- Meðalaldur 27 ár
Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Þórdís Ólafsdóttir
Andri Freyr Hafsteinsson
Rajko Stanisic
Hulda Björk Brynjarsdóttir
Gul spjöld:
Rauð spjöld: