SKÝRSLAN: Leikur tveggja hálfleika
Hvað réði úrslitum?
Leikur tveggja hálfleika. Þór/KA mætti ekki til leiks í fyrri hálfleik og það var mikið áfall fyrir lið Stjörnunnar að fá vítið á sig í upphafi þess síðari.
Bestu leikmenn
1. Melissa Anne Lowder
Markvörður Þór/KA fékk á sig þrjú mörk en hún kom svo sannarlega í veg fyrir að staðan var ekki verri og gaf liðinu líflínu.
2. Sædís Rún Heiðarsdóttir
Leggur upp tvö fyrstu mörk Stjörnunnar með frábærum fyrirgjöfum
Atvikið
Þór/KA fékk vítaspyrnu í byrjun seinni hálfleiks þegar brotið var á Huldu Ósk. Hulda Björg skoraði úr vítinu og það var upphafið af frábærri endurkomu
Hvað þýða úrslitin?
Þór/KA fer upp í 3. sætið, upp fyrir FH í bili að minnsta kosti og er stigi á eftir Breiðablik sem er þó marki yfir gegn Val þegar þetta er skrifað. Stjarnan hefur ekki unnið leik í júní mánuði, tvö töp og tvö jafntefli. Liðið er í 6. sæti og getur verið í neðri hlutanum þegar 10. umferð lýkur.
Vondur dagur
Varnarleikur beggja liða mjög slakur. Þór/KA liðið var varla með í fyrri hálfleik og Melissa þurfti að hafa sig alla við. Lítið hægt að setja út á hana í öllum mörkunum.
Dómarinn - 7
Flottur leikur hjá honum. Ekkert út á hann að setja, dæmir réttilega vítaspyrnu.



