Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
Rigning og gola, gleðilegt sumar
2 - 1
Valur
Valur
Agla María Albertsdóttir 3'1 - 0Arna Sif Ásgrímsdóttir (sjm) 44'2 - 02 - 153' Ásdís Karen Halldórsdóttir
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: Blikar taka toppsætið af Völsurum

Hvað réði úrslitum?

Blikarnir byrjuðu betur og settu mark strax á 3. mínútu. Þær náðu svo að setja annað rétt fyrir hálfleik og þá var brekkan bara orðin of brött fyrir Val. Valsarar mega eiga það að þær reyndu að sækja jöfnunarmarkið en það bara gekk ekki.

Bestu leikmenn

1. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir

Bergþóra var valin maður leiksins á vellinum og ég ætla bara að fá að vera sammála því. Þvílík barátta í henni á miðjunni og skilaði svo sannarlega sínu.

2. Agla María Albertsdóttir

Agla María var hvað mest ógnandi í liði Blika í dag og skoraði svo frábært mark. Ekki hægt að segja annað en að hún hafi líka skilað sínu í dag.

Atvikið

Annað markið hjá Blikum varð til þess að þetta var alltaf að fara að vera erfitt fyrir Valsara í seinni hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Blikar jafna Valsara á stigum og hrifsa af þeim toppsætið á betri markatölu.

Vondur dagur

Arna Sif vill líklega gleyma þessum leik sem fyrst. Hún leit ekki vel út í fyrsta markinu og síðan er alltaf vont að skora sjálfsmark. Hún var svo næstum því búin að kosta Valsara annað mark en Fanney varði þá vel.

Dómarinn - 8

Mér fannst Erlendur og hans teymi gera þetta vel í dag. Þetta var ekkert sérstaklega erfiður leikur að dæma og lítið af stórum atvikum en það sem Erlendur dæmdi, dæmdi hann vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.