Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
Tre Penne
1
7
Breiðablik
0-1 Höskuldur Gunnlaugsson '6
0-2 Ágúst Eðvald Hlynsson '25
Antonio Barretta '31 1-2
1-3 Klæmint Olsen '45
1-4 Stefán Ingi Sigurðarson '67
1-5 Viktor Karl Einarsson '74
1-6 Höskuldur Gunnlaugsson '89
1-7 Ágúst Eðvald Hlynsson '92
27.06.2023  -  19:00
Kópavogsvöllur
Umspil fyrir Meistaradeildina
Aðstæður: Mikil rigning og smá vindur
Dómari: Mads-Kristoffer Kristoffersen (Danmörk)
Byrjunarlið:
26. Mattia Migani (m)
3. Piero Tamagnini
4. Roberto Rosini
6. Andrea De Falco ('90)
11. Luca Ceccaroli ('61)
14. Marcello Scarponi
16. Nicola Bellucci ('46)
22. Assane Fall
24. Antonio Barretta ('76)
28. Giacomo Nigretti
95. Imre Badalassi ('76)

Varamenn:
21. Michael Battistini (m)
99. Andrea Bianchini (m)
2. Davide Cesarini ('76)
7. Michele Stellato ('90)
9. Riccardo Pieri ('46)
10. Lorenzo Dormi ('61)
13. Giuseppe Maio
23. Fabio Giovagnoli ('76)
30. Mirko Malagoli
57. Giacomo Zafferani

Liðsstjórn:
Stefano Ceci (Þ)

Gul spjöld:
Marcello Scarponi ('21)
Luca Ceccaroli ('35)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Blikar spila úrslitaleik við Buducnost frá Svartfjallalandi á föstudaginn!

Takk kærlega fyrir samfylgdina, viðtöl og skýrsla á eftir!
92. mín MARK!
Ágúst Eðvald Hlynsson (Breiðablik)
Stoðsending: Kristinn Steindórsson
7777777! Kiddi með fyrirgjöf sem endar hjá Ágústi sem á skot í varnarmann og netið og fullkomnar frábæran leik sinn, tvö mörk og stoðsending!!
90. mín
Inn: Michele Stellato (Tre Penne) Út: Andrea De Falco (Tre Penne)
Stellato signar sig áður en hann kemur inn fyrir síðustu mínútu leiksins
89. mín MARK!
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
Stoðsending: Viktor Örn Margeirsson
Þarna kom sjötta markið!! Aukaspyrna á fjær sem Viktor Örn gerir frábærlega og skallar boltann fyrir markið á Höskuld sem getur ekki annað en skorað fyrir opnu marki!!

Viktor Örn með tvær stoðsendingar frá því hann kom inn á í hálfleik!
84. mín
Blikar eru að hóta sjötta markinu

Skemmtilegir taktar frá Viktori Karli sem keyrir inn á teig og á skot beint á Migani í marki Tre Penne
80. mín
Frábær sókn Blika sem endar á því að Viktor Karl kemur með rosalega kærulausa vippu sem endar í lúkunum á Migani í markinu
76. mín
Inn:Fabio Giovagnoli (Tre Penne) Út: Imre Badalassi (Tre Penne)
76. mín
Inn:Davide Cesarini (Tre Penne) Út: Antonio Barretta (Tre Penne)
74. mín MARK!
Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Stoðsending: Kristinn Steindórsson
Þetta mun standa!! Hööörmuleg sending markaskorara Penne manna, Antonio Barretta beint á Kidda Steindórs sem leggur boltann einn til hliðar á Viktor Karl inn í teignum sem leggur boltann í netið framhjá Migani í markinu

Þetta var gjöf
72. mín
MARK!! En flaggaður rangstæður

Viktor Karl með sendingu upp kantinn á Höskuld sem sendir fyrir á Stefán, Stefán á skot í markmann Penne manna í sjálfan sig og inn en Höskuldur er flaggaður rangstæður
67. mín MARK!
Stefán Ingi Sigurðarson (Breiðablik)
Stoðsending: Viktor Örn Margeirsson
Búinn að vera inn á í 4 mínútur!!! Viktor Örn Margeirsson með fasta sendingu með jörðinni frá sínum vallarhelmingi inn á Stefán Inga sem keyrir upp völlinn og á skot með lakari fætinum í nær hornið, mjög vel klárað!!

Síðasta mark Stefáns í Breiðabliks-treyju?
66. mín
Stefán!!

Geggjuð fyrirgjöf á fjær þar sem að Stefán er inn á teig og á skalla í bakið á varnarmanni Penne manna og þaðan í hornspyrnu

Það varð ekkert úr hornspyrnunni svo
63. mín
Inn:Stefán Ingi Sigurðarson (Breiðablik) Út:Klæmint Olsen (Breiðablik)
63. mín
Inn:Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik) Út:Oliver Stefánsson (Breiðablik)
63. mín
Inn:Kristinn Steindórsson (Breiðablik) Út:Gísli Eyjólfsson (Breiðablik)
62. mín
Gísli Eyjólfs í ansi góðu skotfæri í D-boganum en skotið er afar lélegt með jörðinni beint á Migani í markinu

Blikar eru að undirbúa þrefalda skiptingu
61. mín
Inn: Lorenzo Dormi (Tre Penne) Út: Luca Ceccaroli (Tre Penne)
58. mín
Jafn lítið að frétta og áðan

Þolinmæðisverk í gangi hjá grænum

Anton Logi búinn að vera öflugur síðan hann kom inn á
53. mín
Ofboðslega lítið að frétta síðustu mínútur, Blikar bara að halda í boltann en gera lítið við hann
47. mín
Gísli keyrir framhjá einum og gefur boltann til hliðar, platar varnarmann og á skot með vinstri í fjær sem Migani ver til hliðar, svo á Ágúst fyrirgjöf yfir markið!
46. mín
Inn: Riccardo Pieri (Tre Penne) Út: Nicola Bellucci (Tre Penne)
Penne menn gerðu einning breytingu
46. mín
Inn:Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik) Út:Oliver Sigurjónsson (Breiðablik)
Hálfleikurinn byrjar á skiptingu
45. mín
Hálfleikur
3-1 í hálfleik, 10-3 í marktilraunum og miðað við færin, nokkuð sanngjarnt!

Sjáumst aftur eftir korter !
45. mín MARK!
Klæmint Olsen (Breiðablik)
Stoðsending: Oliver Sigurjónsson
Rétt fyrir hálfleik!!!! Ágúst Hlyns á sendingu fyrir markið sem Oliver tekur á kassan og á skot í stöngina, boltinn dettur fyrir Klæmint Olsen sem skorar svo framhjá Migani í markinu!

Fínt að fara með 3-1 inn í hálfleik
45. mín
+3 í uppbót

Blikar að fá hornspyrnu
41. mín Gult spjald: Oliver Stefánsson (Breiðablik)
Hryllilegur varnarleikur, Penne menn fá aukaspyrnu á góðum fyrirgjafastað...
39. mín
Boltinn færður frá vinstri til hægri, alla leið á Höskuld sem á fasta sendingu fyrir markið og þar mætir Klæmint sem reynir hælspyrnu en beint í varnarmann svo kemur Migani í markinu og handsamar boltann
36. mín
35. mín Gult spjald: Luca Ceccaroli (Tre Penne)
31. mín MARK!
Antonio Barretta (Tre Penne)
Ja hérna hér Fyrirgjöf inn á teig eftir stutta aukaspyrnu sem að Nicola Bellucci flikkar á fjær og þar mætir Antonio Barretta og tæklar boltann í autt markið

Þetta var óþarfi, fyrsta marktilraun Penne manna á markið
25. mín MARK!
Ágúst Eðvald Hlynsson (Breiðablik)
Stoðsending: Davíð Ingvarsson
AFTUR ÁGÚST!! Davíð Ingvarsson með boltinn úti vinstra megin, fer aaauuuðvitað á sinn fræga vinstri fót og á sendingu fyrir markið sem dettur fyrir Ágúst sem á skot sem fer í stöngina og inn!!
22. mín
21. mín
Penne menn í hálf-færi en Badalassi tá-ar boltann 10 metra framhjá markinu
21. mín Gult spjald: Marcello Scarponi (Tre Penne)
19. mín
Video Assistant Referee....

Sending inn fyrir á Imre Badalassi sem er augljóslega einhverjum 7 metrum fyrir innan sleppur einn inn fyrir og á skot sem Anton ver og þá flaggar AD1
19. mín
Ágúst í færi!!

Viktor Karl með skemmtilega takta og á sendingu á Ágúst sem á skot yfir markið
17. mín
Heyrðu...

Geggjuð aukaspyrna inn á teig þar sem að Tre Penne menn fá frían skalla inn á teig

En Mads Kristoffersen dómari dæmir hins vegar aukaspyrnu, dekkningin inn á teig léleg líkt og á móti HK í Kórnum
15. mín
Annað færi!

Flott sókn þar sem að Blikar færa boltann milli kanta og boltinn endar hjá Davíð Ingvars sem reynir skot en fer af varnarmanni og þaðan aftur fyrir
13. mín
Færi!

Alexander Helgi kominn á hægri kantinn og á flotta fyrirgjöf inn á teig þar sem að Klæmint Olsen á skalla framhjá markinu!
11. mín
Tre Penne menn með skemmtilega útfærslu eftir hornspyrnu þar sem að þeir fá gott skottækifæri inn í D-boganum en á fast skot í varnarmann Blika
7. mín
Leikmenn og þjálfarar Buducnost mættir á Kópavogsvöll að scout-a næsta andstæðing sinn en sigurliðið hér mætir þeim á föstudag
6. mín MARK!
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
Stoðsending: Ágúst Eðvald Hlynsson
Þetta tók ekki langan tíma!! Kleimint og Ágúst með frábæran 1-2 þar sem að Ágúst fær boltann upp við endalínu og á sendingu inn á teig sem fer í varnarmann og dettur fyrir Höskuld sem bombar boltanum í mitt markið !

1-0!
4. mín
ÁGÚST?!! Flott sókn Blika sem endar á því að Höskuldur fær boltann upp við endalínu og leggur boltann út í teig á Ágúst Eðvald sem er í dauðafæri en Migani í markinu ver þetta vel.
1. mín
Leikur hafinn
Leiðin á Wembley er hafin!!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn Óskar Hrafn gerir sex breytingar frá 5-2 tapinu gegn HK en Ágúst Hlynsson, Davíð Ingvarsson, Kleimint Olsen, Oliver Stefánsson, Oliver Sigurjónsson og Damir Muminovic koma allir inn í liðið í kvöld.
Fyrir leik
Upplegg Blika Verða Blikar í sama stutta spili og þeir voru í gegn HK? Munu Blikar stilla upp sínu sterkasta liði? Verður þetta síðasti leikur Stefáns Inga fyrir Breiðablik? verður áhugavert að sjá
Fyrir leik
Blikar munu mæta Buducnost á föstudaginn ef þeir vinna Tre Penne. Þessi lið mættust í fyrra í undankeppni sambandsdeildarinnar, þar var alvöru hiti á Kópavogsvelli. En Blikarnir þurfa fyrst að klára leikinn í dag
Fyrir leik
Með þokkalega mynd af þessu liði "Við erum búnir að skoða þá eins vel og nokkur kostur er á. Það liggja ekki á lausu upptökur frá deildinni þannig að við þurftum að koma okkur inn á einhverjar síður og nota skjáupptöku á leiki hjá þeim. Það hefur gengið ágætlega," segir Óskar og bætir við:

„Við erum með þokkalega mynd af þessu liði. Þetta eru góðir fótboltamenn. Leiðin á móti þessu liði er að spila af krafti, ná upp tempói og gera hlutina hratt. Þetta eru góðir fótboltamenn sem eru við fyrstu sýn ekki brjálæðislega spenntir fyrir því að mæta í návígum og hörku. Þetta eru gæðaleikmenn sem geta sært þig þegar þeir fá pláss og tíma. Við þurfum að keyra upp hraðann, vera grimmir og harðir."
Fyrir leik
Höskuldur er peppaður „Krafan frá okkur sjálfum er að vinna þennan leik, en það verður svo sannarlega ekkert vanmat. Við vitum að þeir munu gefa allt í þetta eins og bikarleikir og Evrópuleikir eru. Það skiptir ekki máli hver mótherjinn er, þetta er alltaf smá ströggl og erfitt," segir Höskuldur en hann hvetur fólk til að skella sér á völlinn á morgun.

"Við erum alltaf að reyna að hækka ránna í þessum Evrópubolta hjá íslenskum félagsliðum. Það byrjar á morgun og ég hvet alla til að mæta á völlinn."
Fyrir leik
Champions League kvöld í Kópavogi! Heilir og sælir lesendur góðir og verið velkomnir í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem að Breiðablik mætir Tre Penne frá San Marínó
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson ('46)
4. Damir Muminovic
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
11. Gísli Eyjólfsson ('63)
20. Klæmint Olsen ('63)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
25. Davíð Ingvarsson
28. Oliver Stefánsson ('63)

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Alex Freyr Elísson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
10. Kristinn Steindórsson ('63)
13. Anton Logi Lúðvíksson ('46)
14. Jason Daði Svanþórsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
21. Viktor Örn Margeirsson ('63)
23. Stefán Ingi Sigurðarson ('63)
26. Ásgeir Helgi Orrason
30. Andri Rafn Yeoman

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Halldór Árnason (Þ)

Gul spjöld:
Oliver Stefánsson ('41)

Rauð spjöld: