SKÝRSLAN: Lítil mistök réðu úrslitum í stórleiknum
Hvað réði úrslitum?
Eins og stendur í fyrirsögninni þá voru það lítil mistök sem réðu úrslitum. Þá er ég aðalega að tala um mistök í varnarleik HK. Þær fengu tvö mörk á sig úr horni eftir mjög slæman varnarleik í báðum mörkum sem er ekki boðlegt. Síðan voru HK heillt yfir betri í upphafi síðari hálfleiks og komu með mikla orku inn í hann en þær nýttu færin illa.
Bestu leikmenn
1. Birta Birgisdóttir
Var gjörsamlega frábær í dag í alla staði. HK eru með mjög öfluga miðju og þess vegna var vitað fyrir leik að það myndi mikið mæða á Birtu en hún vann svo heldur betur inn fyrir kaupinu sínu í kvöld. Síðan skemmdi það ekki fyrir að hún skoraði eitt og lagði upp eitt.
2. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir
Hún fékk vissulega eitt mark á sig en það var ekki eins og hún hefði getað komist í veg fyrir það að mínu mati. Líklega einn besti leikur sem ég hef séð hana spila í dag. Var mjög snögg að koma boltanum í spil og var dugleg að koma út í teig að grípa boltann. Síðan áttu hún þessa rosalegu þreföldu vörslu á 59. mínútu. Eitthvað það rosalegasta sem ég hef séð og hreint rannsóknarefni hvernig hún fór að því að fá ekki á sig mark úr þeirri skothríð. Fagmannleg frammistaða hjá henni í kvöld.
Atvikið
Markið hjá Birtu á 81. mínútu. Fyrir það mark beið maður bara eftir því að HK myndu komast yfir. Markið hjá Birtu gaf Víkingskonum mjög mikið því þær sáu varla til sólar í seinni hálfleik. Ég hefði einnig getað valið fyrstu skiptingu leiksins þegar Katrín kom inn á fyrir HK. Hún var strax búin að búa til færi eftir 5 sek og jafnaði síðan fyrir HK og var allt í öllu í sóknarleik þeirra í dag.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingskonur stækka bilið í fimm stig milli sín og HK og verða í toppsætinu þegar umferðinni lýkur. HK hinsvegar gæti farið í þriðja sætið ef Fylkir tapar ekki sínum leik gegn Gróttu.
Vondur dagur
Erfitt að pikka einhvern einn frekar en bara varnarleik HK í heild sinni. Tvö mörk komu úr horni og í báðum mörkunum hefðu þær getað gert betur. Hinsvegar fyrir utan þessi föstu leikatriði var varnarleikurinn fínn í heild sinni þannig ég set þetta kannski bara á set piece coach-inn hjá HK.
Dómarinn - 8
Var bara flottur í dag og nelgdi allar ákvarðanirnar að mínu mati. Fannst hann kannski á köflum vera að flauta of oft en það er kannski bara bull í mér. Mjög góður dagur hjá teyminu í kvöld.



