Fotbolti.net
Patrekur Orri Guðjónsson
Afturelding
Afturelding
Lengjudeild kvenna
Malbikstöðin að Varmá
Skýjað og hellidemba
1 - 0
FHL
FHL
Hlín Heiðarsdóttir 36'1 - 0
Dómari: Ingólfur Kristinn Magnússon
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Iðnaðarsigur af gamla skólanum á Malbikstöðinni

Hvað réði úrslitum?

Eina mark leiksins skoraði Hlínm eftir flottan undirbúning Önnu og Snæfríði. Það þarf ekki meira en eitt mark til að vinna fótboltaleik.

Bestu leikmenn

1. Hlín Heiðarsdóttir

Hlín var allt í öllu í dag, hefði getað skorað allt að þrjú í viðbót. Flott mark og alltaf að ógna.

2. Eva Ýr Helgadóttir

Hreint lak frá Evu í dag, átti frábæra vörslu í byrjun leiks þegar staðan var 0-0. Mjög traust í markinu í dag, lokaði á allt sem kom hennar veg í dag.

Atvikið

Þar sem það var mjög lítið um stór atvik í dag þá verð ég að skrá mark leiksins hér inn. Mörkin hefðu átt að vera fleiri en mark Hlínar skilaði 3 stigum til Mosfellsbæjar í dag.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding heldur sér í 6. sæti en færast nær toppnum. Eftir úrslitin í dag eru þær bara 3 stigum frá 2. sætinu. FHL eru enn í 8. sæti, 3 stigum frá fallsæti eftir enn einn tapleikinn á útivelli.

Vondur dagur

Það er mjög erfitt að nefna einhvern leikmann hér inn, þar sem að enginn átti einkennilega vondan leik. Ætli ég verði ekki bara að setja dómaratríóið hér inn, þau hafa og munu vonandi eiga betri daga á dómgæsluferli sínum en í dag.

Dómarinn - 4/10

Mjög áhugarverður seinni hálfleikur hjá Ingólfi í dag, virtist vera frekar týndur. Óákveðinn og leikmennirnir skildu oft ekki hvað hann var að flauta á. Hefði einnig átt að vera strangari á spjöldunum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.