Fotbolti.net
@dani_darriDaníel Darri Arnarsson
Afturelding
Afturelding
Lengjudeild kvenna
Malbikstöðin að Varmá
Sunny Mosó og smá vindur
2 - 2
Fram
Fram
0 - 170' Breukelen Lachelle WoodardMaya Camille Neal 76'1 - 11 - 282' Breukelen Lachelle WoodardJamie Renee Joseph 84'2 - 2
Dómari: Sigurður Schram

SKÝRSLAN: Frábær skemmtun í Mosó

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn fór afar hægt af stað eða hreinlega bara allur fyrri hálfleikurinn var frekar dapur og fá færi á báða boga en allt sprakk út í þeim seinni með fyrsta markinu opnaðist leikurinn svakalega hefði getað komið en fleiri mörk en 2-2 niðurstaða.

Bestu leikmenn

1. Breukelen Lachelle Woodard, Fram

Hún er bara x-factorin í þessu Fram liði, Svakalega gaman að horfa á hana spila og bara flest öll lið í svaka brasi með hana. Geggjað aukaspyrnumark og var geggjuð í leiknum. 2 mörk ekki hægt að biðja um meira.

2. Meghan Callahan Root, Afturelding

Þegar lítið var í gangi var hún oft að reyna sprengja upp leikinn með frábærri vinslu og óheppin að hafa ekki skorað þar sem hún átti eitt svakalegt skot sem Mist ver í slánna. Hún og fleiri í Aftureldingarliðinu voru frábærar t.d. vinnslan í Hlín var svakaleg og hún var einnig frábær í leiknum.

Atvikið

Ætla segja að markmanna skipting Fram eftir 20 sek eins og Guðlaug meiðist á fyrsta sparkinu sem hún tekur. Gæti verið að þessi skipting hefði verið reynt til að Mist gæti spilað í undanúrslitum í 2.flokki kvenna bikarnum en gæti líka verið hreinlega bara meiðsli.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding heldur bara 5.sæti með 27 stig og enda í 5.sæti í lengjudeild kvenna í ár þó það sé einn leikur hjá þeim eftir gegn FHL. Fram heldur 7.sætinu með 18 stig og eiga KR í næstu umferð sem ég myndi halda að verði svaka skemmtilegur leikur!

Vondur dagur

Finnst eiginlega ekki leikmaður eiga þetta skilið svoldið hart en það eru bara stóru ákvarðarinar hjá Sigurði dómara sem hann failar svakalega og leikurinn hefði getað endað allt öðruvísi.

Dómarinn - 2

Siggi átti því miður svakalega slakan dag, mörg flaut óþarfi og var aldrei nógu ákveðinn í dómum sínum t.d. hann var í 2.mín að dæma gult spjald á Jóhönnu og hefði alveg getað dæmt í marki Mayu sem jafnar leikinn ef svo væri hefði leikurinn endað allt öðruvísi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.