Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
Pölten vann fyrri leikinn 4-0
NV Arena
SKN St. Pölten
SKN St. Pölten
0 - 1
Valur
Valur
0 - 175' Lise Dissing
Dómari: Catarina Campos (Portúgal)
Leik lokið!
Niðurstaðan samanlagt: St Pölten 4-1 Valur
St. Pölten vann í heildina öruggan sigur í einvíginu eftir að hafa rúllað yfir Val í fyrri leiknum. Austurríska liðið fer því áfram en þátttöku Vals í Evrópukeppninni þetta árið er lokið.

Tölfræði leiksins:
Marktilraunir: 15-9
Hornspyrnur: 6-6
Rangstöður: 0-3
Valur
92. mín
InnRebekka Sverrisdóttir
ÚtMálfríður Anna Eiríksdóttir
Valur
92. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtBerglind Rós Ágústsdóttir
90. mín
Uppbótartími í gangi.
87. mín
Sarah Mattner með tilraun á rammann
Fanney ver.
84. mín
Fanndís Friðriksdóttir með marktilraun
Carina Schlüter varði.
83. mín
Mateja Zver tók hornspyrnu
Valur
75. mín
InnFanndís Friðriksdóttir
ÚtLise Dissing
Valur
75. mín
InnGuðrún Elísabet Björgvinsdóttir
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir
Valur
75. mín
InnÍsabella Sara Tryggvadóttir
ÚtBryndís Arna Níelsdóttir
Valur
75. mín
Valur nær að skora!

Lise Dissing (stoðsending: Bryndís Arna Níelsdóttir)

Minnkar muninn í þessu einvígi niður í 4-1.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur
68. mín
Gult spjald

Lára Kristín Pedersen

Braut á Isabelle Meyer.
65. mín
Arna Sif Ásgrímsdóttir með marktilraun
Carina Schlüter ver.
56. mín
Mária Mikolajová með skot á mark
Fanney ver.
Valur
54. mín
Fyrsta gula spjald leiksins

Laura Frank

SKN St. Pölten
46. mín
InnMelanie Brunnthaler
ÚtRita Schumacher
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Staðan enn markalaus í þessum seinni leik en Pölten leiðir einvígið sjálft 4-0 eftir að hafa rúllað yfir fyrri leikinn á Hlíðarenda. Allt sem bendir til þess að Valur kveðji Evrópu eftir 45 mínútur... nema eitthvað algjörlega ótrúlegt eigi sér stað.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikstölfræði
Marktilraunir: 7-4
Hornspyrnur: 1-2
Rangstöður: 0-2
41. mín
Rita Schumacher með skot
Fanney ver.
32. mín
Mateja Zver með skot
Fanney Inga Birkisdóttir ver.
30. mín
Valentina Mädl með skot
Fanney Inga Birkisdóttir ver.
SKN St. Pölten
29. mín
InnIsabelle Meyer
ÚtJennifer Klein
27. mín
Berglind Rós Ágústsdóttir með skot
Aftur nær Schlüter að verja.
24. mín
Lise Dissing með fyrstu marktilraun Vals
Carina Schlüter nær að verja.
20. mín
Staðan enn markalaus
Heimakonur hafa átt einu marktilraunirnar sem eru komnar til þessa.
10. mín
Mjög róleg og tíðindalaus byrjun á leiknum
1. mín
Leikur hafinn
Aðeins um úrslitaþjónustu að ræða
Því miður er ekki um ítarlega textalýsingu að ræða frá þessum leik, heldur úrslitaþjónustu þar sem það allra helsta sem gerist í leiknum er sett inn.

Catarina Campos frá Portúgal er búin að flauta leikinn á.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Vonbrigði fyrir Val að leikurinn tapaðist illa
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, var spurður út í fyrri leikinn á fréttamannafundi. Er það áhyggjuefni að íslenskt félagslið tapi 4-0 í Meistaradeildinni?

„Fyrst og fremst eru þetta vonbrigði fyrir Val að leikurinn tapist illa. Fyrri hálfleikurinn var allt í lagi en seinni hálfleikurinn var ekki þeirra besti," sagði Steini.

„Austurríska liðið er fjórtánda hæst á styrkleikalistanum og Valur er í 48. sæti... þetta eru þá ekki í sjálfu sér óeðlileg úrslit. Austurríska liðið er gott og hefur verið gott í mörg ár. Þær hafa tapað einum titli á síðustu tíu árum eða eitthvað svoleiðis. Þetta er gott lið og hefur alltaf verið í baráttunni. Þær eru með góða leikmenn og þær eru gott atvinnumannalið, en þetta eru vonbrigði fyrir Val."
Fyrir leik
Þær nýttu sín færi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er hægt að segja helling,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir tapið í fyrri leiknum.

„Mér fannst við spila þetta vel í fyrri hálfleik, við lokuðum vel á þær. Ódýrt mark sem við fáum á okkur svo fáum við annað markið á okkur sem mér fannst ódýrt líka, bara langskot sem þær skora úr. Þá fannst mér svona dofna yfir öllu hjá okkur“

Í stöðunni 2-0 var eins og Valskonur hefðu hreinlega gefist upp og þær fá á sig önnur tvö mörk á tíu mínútna kafla. Þá var holan orðin ansi djúp og það verður erfitt að skríða upp úr henni.

„Ég ætla að taka það fram að þetta er gott lið, þetta er klínískt lið og þær nýttu sín færi. Ég held þær hafi átt kannski fjögur skot á markið og þær skora fjögur mörk. Við náttúrulega vorum að reyna ákveðna hluti og stundum gengur það upp og stundum ekki.“
Fyrir leik
Svekkt með frammistöðuna í fyrri leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara hundfúl, ég er virkilega svekkt með okkar frammistöðu,“ sagði Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmaður Vals, eftir fyrri leikinn.

„Mér fannst þegar við fáum á okkur annað eða þriðja markið hausinn á okkur detta og við erum að svekkja okkur sem að má ekkert í svona leikjum, þá refsa þær. Mér fannst 4-0 ekki sýna getumuninn á þessum liðum en þær mættu til leiks og við ekki þannig að það fór svona.“

„Við erum að klúðra einföldum sendingum, gefum þeim allt of auðvelda leið að markinu okkar og vorum að pirra okkur eftir hverja sendingu og svekkja okkur í staðinn fyrir að bregðast við og reyna að vinna hann strax aftur. Ég held að það hafi verið smá pirringur eftir einhvern tíma og við verðum einhvernveginn að halda okkur á jörðinni, setja hausinn niður og gera vinnuna og reyna að fá það sem við getum úr þessum leik“
segir Anna þegar hún var spurð að því hvort að leikurinn hafi farið frá þeim þegar hausinn fór.

Í miðjum seinni hálfleik kölluðu Valsarar í liðsfund á vellinu og aðspurð hvað hafi verið sagt þar svarar hún:

„Mér fannst það helsta sem við þurftum að breyta var nálgunin okkar á leiknum. Við þurftum bara að rífa hausinn upp, kassann út og keyra á þær. Í svona leikjum þá skiptir markatalan máli þannig ef við hefðum náð að pota inn einu eða tveimur mörkum þá hefði það hjálpað okkur fyrir seinni hálfleikinn. Það var bara að þétta okkur sækja á þær, þora að keyra á þær.“
Fyrir leik
Það er gríðarlega erfitt verkefni framundan fyrir Valskonur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er gríðarlega erfitt verkefni framundan fyrir Valskonur

Liðið mætir St. Pölten í síðari leik liðanna í undankeppni Meistaradeildarinnar í Austurríki.

Þær austurrísku fóru illa með Valskonur hér heima og eru með 4-0 forystu eftir fyrri leikinn svo það þarf mikið að gerast til að Valur komist áfram.

Fyrri leikurinn:

Valur 0 - 4 SKN St. Pölten
0-1 Sarah Mattner ('13 )
0-2 Rita Schumacher ('53 )
0-3 Valentina Mädl ('59 )
0-4 Valentina Mädl ('63 )
Lestu um leikinn
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.