Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikar karla
Boginn
Þór
Þór
5 - 1
KFA
KFA
Fannar Daði Malmquist Gíslason 3'1 - 0Rafael Alexandre Romao Victor 23'2 - 0Abdelhadi Khalok El Bouzarrari (sjm) 36'3 - 0Fannar Daði Malmquist Gíslason 59'4 - 04 - 162' Tómas Atli BjörgvinssonAlexander Már Þorláksson 81'5 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Miklir yfirburðir hjá Þórsurum í dag

Hvað réði úrslitum?

Þórsararnir lögðu grunninn af þessum sigri á fyrsta hálftímanum. Komust í þriggja marka forystu og litu aldrei til baka. Voru með yfirburði langstærstan hluta leiksins.

Bestu leikmenn

1. Fannar Daði Malmquist Gíslason

Skorar tvö góð mörk og var líflegur í sóknarlínu liðsins.

2. Ingimar Arnar Kristjánsson

Var mikið í boltanum og hættulegur inn á teig KFA. Leggur upp en hefði hæglega getað bætt við marki sjálfur.

Atvikið

Fannar Daði kom Þórsurum yfir strax á þriðju mínútu. Það voru fyrirheit um hvað koma skyldi.

Hvað þýða úrslitin?

Þórsarar komnir í 32 liða úrslit Mjólkurbikarsins en KFA situr eftir með sárt ennið.

Vondur dagur

Erfiður dagur fyrir KFA voru ekki klárir í Þórs geðveikina og voru yfirspilaðir.

Dómarinn - 7

Flottur í dag. Gaf Þórsurum kannski soft aukaspyrnu þegar Julio og Aron Birkir voru í baráttunni en annars ekkert hægt að setja út á hann.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.