Fotbolti.net
Þorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
Mjólkurbikar karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
Fínasta veður. Hlýtt og þurrt
Valur
Valur
3 - 0
FH
FH
Hólmar Örn Eyjólfsson 5'1 - 0Patrick Pedersen 39'2 - 0Tryggvi Hrafn Haraldsson 51'3 - 086' Grétar Snær Gunnarsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.
Leik lokið!
Búið!
3-0 lokatölur og Valur fer áfram í bikarnum. FH er hinsvegar úr leik. Mjög sanngjarn sigur Vals hér í kvöld.


Skýrsla og viðtöl innan skamms!
90. mín
þrjár mín í uppbót
FH
86. mín
Gult spjald

Böðvar Böðvarsson

fyrir læti í kjölfarið
Valur
86. mín
Gult spjald

Orri Sigurður Ómarsson

fyrir læti í kjölfarið
FH
86. mín
Glórulaus tækling

Grétar Snær Gunnarsson

Neglir Adam Ægi niður
FH
83. mín
Gult spjald

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson

Brýtur á Bjarna sem þarf aðhlynningu í kjölfarið
Valur
81. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtBirkir Már Sævarsson
Aldursforseti vallarins hefur lokið störfum í dag.
81. mín
Gyrðir nálægt því að klóra í bakkann fyrir FH en skot hans naumlega framhjá
FH
80. mín
Veit hreinlega ekki fyrir hvað?

Ástbjörn Þórðarson

Mögulega kjaftbrúk
79. mín
Tryggvi nálægt því að bæta við
Fær sendingu innfyrir en skotið naumlega framhjá
FH
78. mín
InnArngrímur Bjartur Guðmundsson
ÚtKjartan Kári Halldórsson
FH
72. mín
InnGrétar Snær Gunnarsson
ÚtDusan Brkovic
FH
72. mín
InnGyrðir Hrafn Guðbrandsson
ÚtSigurður Bjartur Hallsson
FH
71. mín
Gult spjald

Ísak Óli Ólafsson

Valur
71. mín
sleppur með gult

Aron Jóhannsson

70. mín
Allt að sjóða upp úr hérna Aron Jó virðist brjóta á tveimur mönnum nánast á sömu sekúndunni. FH-ingar vilja að hann sé sendur í sturtu
Valur
67. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtPatrick Pedersen
65. mín
og hinum megin er Kjartan Kári núna sloppinn einn í gegn en líkt og Lúkas áðan setur hann boltann framhjá.
64. mín
Lúkas Logi átti að skora þarna
Sloppinn einn í gegn eftir snarpa sókn. Hefur allan heimsins tíma einn gegn Daða en setur boltann framhjá
Valur
62. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtElfar Freyr Helgason
Valur
62. mín
InnBjarni Mark Antonsson
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
Valur
62. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
FH
59. mín
InnFinnur Orri Margeirsson
ÚtBaldur Kári Helgason
Tvöföld skipting hjá FH
FH
59. mín
InnBjörn Daníel Sverrisson
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
55. mín
Kjartan Kári tekur aukaspyrnuna en boltinn yfir markið
Valur
54. mín
Gult spjald

Elfar Freyr Helgason

Brýtur af sér rétt fyrir utan vítateiginn
Valur
51. mín
Þvílík gæði

Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

FH vörnin er spiluð sundur og saman af sóknarmönnum Valsliðsins. Endar með því að Gylfi rennir boltanum á Tryggva sem skorað af öryggi í autt markið. Gylfi kominn með tvær stoðsendingar gegn sínum gömlu félögum.

Erfitt að sjá FH koma til baka úr þessu.
48. mín
Seinni hálfleikurinn fer hægt af stað. Lítið að frétta.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur farinn af stað
46. mín
Í skugganum af Bödda.
Skemmtileg mynd af Böðvari Böðvars og Gylfa Sig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

46. mín
Hálfleikur
Valsmenn leiða í hálfleik
Valur
46. mín
45+3

Hólmar Örn Eyjólfsson

Hólmar ansi seinn í Vuk og fær réttilega spjald
FH
45. mín
Gult spjald

Baldur Kári Helgason

Fer harkalega í Tryggva. Gylfi tekur aukaspyrnuna sem fer naumlega framhjá
43. mín
Aron Jó og Arnór Borg skella saman
Aron liggur eftir og fær aðhlynningu. Vonandi ekkert alvarlegt
41. mín
Nokkrar svipmyndir úr leiknum. Hafliði Breiðfjörð er á vellinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur
39. mín
Klaufalegt hjá FH

Patrick Pedersen (stoðsending: Jónatan Ingi Jónsson)

Vuk tapar boltanum á eiginn vallarhelmingi og heimamenn eru fljótir að bregðast við. Jónatan fær boltann út vinstra megin og rennir honum fyrir á Pederesen sem skorar í autt markið.
37. mín
Þessi bolti sést aldrei aftur!
Kjartan Kári reynir skot fyrir utan teig sem fer hátt og langt yfir
33. mín
Vuk reynir bakfallsspyrnu
Það er að færast líf í þetta. Kjartan Kári tekur aukaspyrnu úti á miðjum velli. Eftir smá barning í teignum berst boltinn á Vuk sem tekur bakfallsspyrnu en boltinn fer í hliðarnetið
32. mín
Strax í kjölfarið geysast FH-ingar fram í sókn. Boltinn fer aftur fyrir og FH-ingar vilja horn. Pétur dæmir hinsvegar markspyrnu og Heimi Guðjóns er ekki skemmt
31. mín
Aftur hætta eftir horn
Gylfi tekur hornið, boltanum er flokkað áfram á Kidda sem skýtur naumlega yfir
28. mín
FH í fínni sókn. Kjartan Kári á fyrirgjöf sem Valsmenn skalla frá. Þá kemur Logi Hrafn á fullu spani og á hörkuskot sem Frederik gerir vel í að handsama.
26. mín
Tryggvi!!
Tryggvi með góðan sprett og tekur skot rétt fyrir utan teig sem fer naumlega framhjá
Valur
22. mín
Fyrsta gula spjaldið

Kristinn Freyr Sigurðsson

Vuk er kominn fram hjá Kidda Frey sem ákveður að taka hann niður. Hárrétt spjald
20. mín
Patrick tapar boltanum úti á miðjum velli, vildi fá aukaspyrnu en fékk FH. FH sótti hratt og endar sóknin með því að Kjartan Kári á skot sem Frederik ver þægilega
17. mín
Aftur fá Valsmenn horn. Gylfi mætir á vettvang. FH -ingar ná í þetta sinn að hreinsa frá
15. mín
Ósköp rólegt yfir þessu núna.
FH aðeins að ná áttum. Hafa þó ekki náð að valda Valsmönnum neinum sérstökum vandræðum.
10. mín
Smá lífsmark hjá FH
Vuk með skot sem er varið í horn. Þeir gerast þó brotlegir í horninu og ekkert verður úr því
10. mín
Tryggvi var sloppinn í gegn eftir að Patrick hafði skallað boltann innfyrir á hann en réttilega dæmdur rangstæður
7. mín
FH-ingar virðast svolítið slegnir út af laginu hérna í byrjun. Miklir yfirburðir heimamanna
Valur
5. mín
Þetta tók ekki langan tíma

Hólmar Örn Eyjólfsson (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

Hólmar Örn Eyjólfsson stangar boltann inn eftir góða hornspyrnu frá Gylfa Sig. Heimamenn eru komnir yfir.
4. mín
Valur fær fyrsta horn leiksins
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað
Það eru heimamenn í Val sem byrja með boltann
Fyrir leik
Það er að rætast úr mætingunni
Svona fyrir þá sem höfðu áhyggjur eftir seinustu færslu. Fín mæting.

Má líka til með að hrósa Valsmönnum fyrir umgjörðina. Alvöru standard sem þeir eru að setja.
Fyrir leik
Ekkert sérstaklega vel mætt
Verð að játa að ég átti von á fleirum hérna í dag. Sérstaklega miðað við að maður þurfti nánast að finna bílastæði í Kópavogi til að komast á völlinn. Korter í leik og stúkan tómleg. Vonandi erum bara sem flestir að vökva sig fyrir leikinn í fjósinu hérna í næsta húsi
Fyrir leik
Hörður kynntur fyrir leik
Sérstök staða. Hörður Ingi Gunnarsson er genginn til liðs við Val frá FH. og Bjarni Guðjón Brynjólfsson skiptir á móti úr Val í FH.

Hörður, sem er uppalinn í FH, er mættur í VIP stúkuna hér á Hlíðarenda og verður kynntur sem leikmaður Vals fyrir leik.

Fyrir áhugasama má benda á að Hörður lék sína fyrstu meistaraflokksleiki á ferlinum fyrir Víking Ó., á átjánda aldursári. Einn af fjölmörgum öflugum leikmönnum sem hafa farið í gegnum Ejub Purisevic skólann.
Fyrir leik
Byrjunarliðs tíðindi - Bakverðir utan hóps
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Stjörnunni í síðasta deildarleik. Elfar Freyr kemur inn fyrir Bjarna Mark Antonsson sem tekur sér sæti á bekknum og Kristinn Freyr kemur inn fyrir Sigurð Egil Lárusson sem glímir við meiðsli. Tristan Snær Daníelsson sem fæddur er árið 2005 kemur inn í hópinn.

Heimir Guðjónsson, fyrrum þjálfari Vals og nú þjálfari FH, gerir fjórar breytingar frá sigrinum gegn HK í síðasta deildarleik. Daði Freyr kemur í markið og þeir Dusan, Baldur Kári og Arnór Borg koma einnig inn í liðið. Sindri Kristinn Ólafsson, Björn Daníel Sverrisson og Finnur Orri Margeirsson taka sér sæti á bekknum en Ólafur Guðmundsson glímir við meiðsli. Jóhann Ægir Arnarsson er í leikmannahópi FH í fyrsta sinn á tímabilinu en hann sleit krossband síðasta sumar.

Hörður Ingi Gunnarsson er ekki í hóp hjá FH, hann hefur ekki verið í hóp á tímabilinu til þessa. Haraldur Einar Ásgrímsson, sem hefur komið inn af bekknum í fyrstu þremur leikjum FH á tímabilinu, er á leið í Fram og er því heldur ekki í hóp.
Fyrir leik
Það er ekki bara Gylfi sem er að mæta uppeldisfélaginu sínu hér í kvöld. Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, er einnig að mæta sínum gömlu félögum í fyrsta sinn í dag.

Hann er alinn upp hjá FH en hefur farið tvisvar út í atvinnumennsku frá félaginu. Fyrst fór hann 16 ára gamall til AZ Alkmaar í Hollandi en snéri svo aftur heim í FH þremur árum seinna. Hann fór svo til Sogndal í Noregi snemma árs 2022 en er nú mættur aftur til Íslands og samdi við Val
Fyrir leik
Bæði lið hafa spilað 3 leiki í deildinni áður en að þessum bikarleik kemur.

Valsmenn unnu ÍA og gerðu jafntefli við Fylki áður en liðið tapaði gegn Stjörnunni í seinustu umferð og uppskeran því 4 stig.

FH byrjaði á tapi gegn FH en í kjölfarið komu sigrar gegn KA og HK. Liðið er því með 6 stig.
Fyrir leik
Gylfi gegn uppeldisfélaginu
Helsta sögulínan hér í kvöld er líklega sú að Gylfi Sigurðsson er að mæta uppeldisfélaginu, FH, í fyrsta sinn eftir heimkomuna.

Eins og flestir vita er Gylfi uppalinn hjá Fimleikafélaginu. Fyrir nokkrum árum talaði hann reglulega um það í viðtölum að hann teldi líklegt að hann myndi enda ferilinn í Hafnarfirði. Nú er hann hinsvegar mættur til Vals, mörgum Hafnfirðingum til þónokkurs ama.
Fyrir leik
Stórleikur í bikar
Komiði sæl og verið velkomin í viðureign Vals og FH í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í knattspyrnu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.