Fotbolti.net
@thorsteinnhaukuÞorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
Mjólkurbikar karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
Fínasta veður. Hlýtt og þurrt
Valur
Valur
3 - 0
FH
FH
Hólmar Örn Eyjólfsson 5'1 - 0Patrick Pedersen 39'2 - 0Tryggvi Hrafn Haraldsson 51'3 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FH sá aldrei til sólar gegn Val

Hvað réði úrslitum?

Valsmenn voru einfaldlega betri á flestum sviðum leiksins í kvöld. Mark strax í byrjun gerði hlutina þægilega fyrir heimamenn og var sigurinn aldrei í hættu.

Bestu leikmenn

1. Gylfi Sigurðsson

Kannski smá klisja að velja hann bestan gegn uppeldisfélaginu en það er bara verðskuldað. 2 stoðsendingar og heilt yfir mjög flottur leikur.

2. Hólmar Örn Eyjólfsson

Stóð vaktina eins og klettur í vörninni og skoraði líka fyrsta markið. Orri Sigurður kom líka til greina hérna

Atvikið

Mark strax í byrjun leiksins. Eftir það var þetta brekka fyrir gestina.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn eru komnir í 16 liða úrslit bikarsins en FH er úr leik þetta árið.

Vondur dagur

Ég var búinn að ákveða að setja bara framlínu FH í þennan dálk enda hafði það verið verðskuldað. Sigurður Bjartur fann sig t.d. engan veginn í kvöld. En Grétar Snær vinur minn ákvað að troða sér líka í þennan dálk með glæfralegri tæklingu seint í leiknum þegar hann var nýkominn inn á sem varamaður. Grétar fékk réttilega rautt spjald fyrir vikið.

Dómarinn - 8,5

Bara eins og við var að búast hjá Pétri. Með þetta meira og minna allt í teskeið í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.