Fotbolti.net
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild kvenna
Lambhagavöllurinn
7/10
Fram
Fram
8 - 2
ÍR
ÍR
0 - 16' Lovísa Guðrún EinarsdóttirAlda Ólafsdóttir 18'1 - 1Alda Ólafsdóttir 20'2 - 1Emma Björt Arnarsdóttir 28'3 - 1Murielle Tiernan 36'4 - 1Murielle Tiernan 38'5 - 1Murielle Tiernan 51'6 - 16 - 269' Berta Sóley SigtryggsdóttirÍrena Björk Gestsdóttir 83'7 - 2Margrét Ósk Borgþórsdóttir (sjm) 90'8 - 2
Dómari: Magnús Valur Böðvarsson

SKÝRSLAN: Guð blessi varnarmenn Lengjudeildarinnar

Hvað réði úrslitum?

Fram er bara mun betra fótboltalið á þessum tímapunkti. Það er bara þannig. ÍR komst yfir snemma en þær áttu aldrei einhvern möguleika gegn þeim sóknarvopnum sem Fram býr yfir.

Bestu leikmenn

1. Murielle Tiernan (Fram)

Sú er alltof góð fyrir þessa deild. Skoraði þrennu og var mikilvæg í öllum sóknaraðgerðum Fram. Hún dregur alveg rosalega mikið til sín.

2. Alda Ólafsdóttir (Fram)

Þær voru margar góðar í Framliðinu í kvöld en Alda fær þetta auðvitað. Skorar tvö í fyrsta deildarleik með Fram og var virkilega öflug.

Atvikið

Þriðja markið var mjög skemmtilegt, og eftir það var einhvern veginn öll von úti hjá ÍR. Hornspyrna sem var teiknuð upp beint á æfingasvæðinu. Óskar Smári, þjálfari Fram, var ekkert eðlilega glaður og það var gaman að sjá.

Hvað þýða úrslitin?

Fram er á toppnum eftir eina umferð. Þær eru til alls líklegar í sumar og geta klárlega farið upp úr þessari deild. Eru eitt af þeim liðum. ÍR þarf heldur betur að rífa sig í gang ef ekki á illa að fara hjá þeim í sumar.

Vondur dagur

Fyrir varnarmenn Lengjudeildarinnar. Alda Ólafsdóttir og Murielle Tiernan... guð blessi ykkur. Eftir 8-2 tap, þá er í raun ekki hægt að segja annað en að allt ÍR-liðið hafi átt vondan dag.

Dómarinn - 8

Maggi Bö stóð sig bara mjög fínt. Ekkert sérlega erfiður leikur að dæma en hann gerði þetta virkilega vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.