Leik lokið!
Þetta er búið
90. mín
Klukkan slær 90 hér í Árbænum
Uppbótartíminn er að lágmarki þrjár mínútur.
87. mín
Þetta er að fjara út hér í Árbænum og Fylkismenn eru að sigla inn í átta liða úrslitin.
81. mín
George Nunn fær boltann vinstramegin við teiginn og á skot sem fer rétt framhjá.
80. mín
Guðmundur Tyrfingsson fær boltann en hleypur með hann útaf og markspyrna frá marki HK
77. mín
Guðmundur Tyrfingsson nær fínu soti fyrir utan sem Stefán ver.
75. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtMatthias Præst Nielsen
71. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtBrynjar Snær Pálsson
71. mín
InnGeorge Johannes Nunn
ÚtKristján Snær Frostason
69. mín
InnArnór Breki Ásþórsson
ÚtÁsgeir Eyþórsson
68. mín
Birkir Valur lyftir boltanum inn á teiginn og Ólafur kemur út og grípur að miklu öryggi.
66. mín
Halldór fær boltann inn á teig HK og fellur. Fylkismenn vilja víti en Halldór Jón var flaggaður fyrir innan.
Spurning hvort Twana hefði bent á punktinn ef Halldór hefði verið réttur?
Spurning hvort Twana hefði bent á punktinn ef Halldór hefði verið réttur?
63. mín
Gumundur Tyrfings fær boltann úti til vinstri og vinnur horn fyrir Fylkismenn.
57. mín
InnBirnir Breki Burknason
ÚtEiður Gauti Sæbjörnsson
57. mín
InnÍvar Orri Gissurarson
ÚtMagnús Arnar Pétursson
57. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtSigurbergur Áki Jörundsson
57. mín
InnGuðmundur Tyrfingsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
57. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtBenedikt Daríus Garðarsson
55. mín
SLÁIIIN!!!
Sigurbergur fær boltann og nær frábæru skoti sem fer í slánna.
54. mín
Þórður Gunnar gerir vel úti hægra megin og vinnur hornspyrnu.
50. mín
HK fær hornspyrnu
Aziz tekur hana inn á teiginn og Fylkismenn í hálfgerðri nauðvörn en koma boltanum í burtu.
48. mín
HK byrjar sterkt
HK er að byrja þennan síðari hálfleik vel og sækja á Fylkismenn sem höndla pressuna nokkuð vel.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
InnHákon Ingi Jónsson
ÚtTumi Þorvarsson
45. mín

Fleiri myndir að detta inn!!


45. mín


Eyjólfur Garðarsson okkar maður er mættur með myndavélina!



45. mín
Hálfleikur
Twana Khalid flautar til hálfleiks. Virkilega skemmtilegum fyrri hálfleik lokið. Vonandi heldur þessi veisla áfram í þeim síðari.
Fáum okkur kaffi og komum aftur eftir fimmtán mínútur.
Fáum okkur kaffi og komum aftur eftir fimmtán mínútur.
45. mín
Uppbótartími fyrri hálfleiks er að lágmarki ein mínúta.
41. mín
Fylkir fær hornspyrnu
Enn og aftur nær Þórður Gunnar ekki að koma boltanum yfir fyrsta mann og HK kemur boltanum í burtu.
Enn og aftur nær Þórður Gunnar ekki að koma boltanum yfir fyrsta mann og HK kemur boltanum í burtu.
38. mín
HK fær hornspyrnu.
35. mín
Atli Arnarsson!!
Fær boltann á miðjum vallarhelming Fylkis og lætur bara vaða á markið. Ólafur Kristófer þarf að hafa fyrir að kýla þennan afturfyrir. Ekki galin tilraun hjá Atla.
HK tekur hornspyrnuna en ekkert verið úr henni.
HK tekur hornspyrnuna en ekkert verið úr henni.
32. mín
Þórður Gunnar fær boltann inn fyrir en er flaggaður rangstæður.
29. mín
Gult spjald
Sigurbergur Áki Jörundsson
27. mín
Sigurbergur Áki vinnur boltann á miðjunni og þræðir Benedikt Daríus í gegn og Benedikt klárar frábærlega og bætir upp fyrir vítaklúðrið fyrir nokkrum sekúndum síðan.
MAAAAAAAAAAARK
Benedikt Daríus Garðarsson
Fylkismenn eru að hamra járnið á meðan það er heitt!Sigurbergur Áki vinnur boltann á miðjunni og þræðir Benedikt Daríus í gegn og Benedikt klárar frábærlega og bætir upp fyrir vítaklúðrið fyrir nokkrum sekúndum síðan.
26. mín
Víti misnotað
Benedikt Daríus Garðarsson
Benedikt Daríus skýtur framhjá.25. mín
Gult spjald
Stefán Stefánsson
25. mín
FYLKIR ER AÐ FÁ VÍTI!!!!!
21. mín
Fylkismenn eru að snúa taflinu við!!!
Þórður Gunnar Hafþórsson
Þórður Gunnar á frábæra sendingu innfyrir á Matthias sem sleppir aleinn í gegn og reynir að fara framhjá Stefáni en nær því ekki. Matthías rennir boltanum til hliðar á Þórð Gunnar sem kláraði í netið.19. mín
Nikulás og Brynjar Snær skella saman en báðir standa þeir upp sem er vel og leikurinn fer í gang aftur.
15. mín
ísak Aron brýtur á Þórði og Fylkir fær aukaspyrnu á fínum fyrirgjafarstað.
Þórður Gunnar tekur spyrnuna sem er góð og HK hreinsar boltann í horn. Benedikt Darius tekur hornið en boltinn afturfyrir.
Þórður Gunnar tekur spyrnuna sem er góð og HK hreinsar boltann í horn. Benedikt Darius tekur hornið en boltinn afturfyrir.
11. mín
Þetta voru rosaleg mistök hjá Stefáni í marki HK.
FYLKISMENN JAFNA!
Þórður Gunnar Hafþórsson
Fylkismenn lyfta boltanum inn fyrir teig HK. Stefán kemur út úr marki HK og rennur og Þórður Gunnar þakkar fyrir það og setur boltann í autt netið.Þetta voru rosaleg mistök hjá Stefáni í marki HK.
9. mín
Brynjar Snær fær boltann út til vinstri og boltinn af Fylkismanni og í hornspyrnu.
Aziz tekur spyrnuna sem Fylkismenn hreinsa beint á Aziz sem fær aðra tilraun til að koma boltanum inn að marki en ekkert verður úr henni.
Aziz tekur spyrnuna sem Fylkismenn hreinsa beint á Aziz sem fær aðra tilraun til að koma boltanum inn að marki en ekkert verður úr henni.
5. mín
0-1
HK REFSAR!!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Brynjar Snær Pálsson)
Brynjar Snær Pálsson fær boltann út til vinstri og á fyrirgjöf inn á teiginn og boltinn dettur beint á hausinn á Eiði sem skallar boltann í netið.0-1
4. mín
Fylkir fær aðra hornspyrnu
Þessar hornspyrnur Fylkis ekki verið góðar en ná ekki yfir fyrsta mann. HK ekki í vandræðum með að verjast þessu.
Þessar hornspyrnur Fylkis ekki verið góðar en ná ekki yfir fyrsta mann. HK ekki í vandræðum með að verjast þessu.
3. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er heimamanna.
2. mín
Þórður Gunnar svo nálægt því að sleppa einn í gegn en HK kemur boltanum í burtu á síðustu stundu.
1. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað!
Twana Khalid flautar til leiks. Það eru gestirnir úr efri byggðum Kópavogs sem hefja leik.
Góða skemmtun.
Góða skemmtun.
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks
Byrjað er að kynna liðin og allt að verða til reiðu hér í Árbænum.
Mætingin mætti þó vera betri.
Mætingin mætti þó vera betri.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Breiðablik í deildinni nú á dögunum. Sigurbergur Áki Jörundsson fæddur árið 2004 byrjar hjá Fylki í dag og þá kemur Nikulás Val Gunnarsson einnig inn í lið Fylkismanna. Arnór Breki Ásþórsson og Halldór Jón Sigurður Þórðarson fá sér sæti á bekknum.
Ómar Ingi Guðmundsson gerir aðeins fleiri breytingar. Stefán Stefánsson byrjar í marki HK í stað Arnars Freys Ólafssonar. Þá er fyrirliðinn Leifur Andri Leifsson ekki í hóp hjá HK í kvöld.
Ómar Ingi Guðmundsson gerir aðeins fleiri breytingar. Stefán Stefánsson byrjar í marki HK í stað Arnars Freys Ólafssonar. Þá er fyrirliðinn Leifur Andri Leifsson ekki í hóp hjá HK í kvöld.
Fyrir leik
Tvö áttavillt lið að mætast?
Arnar Daði eða Séffinn eins og hann er oft kallaður spáir hunndleiðingum leik hér í kvöld
Fylkir 0 - 0 HK (Fylkir áfram eftir vítaspyrnukeppni.
Tvö áttavillt lið að mætast. HK að vinna leiki sem enginn bjóst við á meðan Fylkismenn virðast ekki geta keypt sér mark og hvað þá að vinna leiki. Þessi leikur fer í framlengingu og ég sé fyrir mér að leikurinn gæti farið alla leið í vítaspyrnukeppni.

Arnar Daði og Bövélin.
Fylkir 0 - 0 HK (Fylkir áfram eftir vítaspyrnukeppni.
Tvö áttavillt lið að mætast. HK að vinna leiki sem enginn bjóst við á meðan Fylkismenn virðast ekki geta keypt sér mark og hvað þá að vinna leiki. Þessi leikur fer í framlengingu og ég sé fyrir mér að leikurinn gæti farið alla leið í vítaspyrnukeppni.

Arnar Daði og Bövélin.
Fyrir leik
Leið liðanna í leik kvöldsins
Bæði þessi lið komu beint inn í 32-liða úrslitin. Fylkismenn fóru á Egilsstaði og mættu Hött/Huginn í leik sem Fylkir kláraði 0-1 með marki frá Ómari Birni Stefánssyni. Gestirnir í HK fóru á Avis-völlinn í Laugardal og unnu Þrótt Reykjavík 1-2. Mörk HK skoraði George Johannes Nunn


Fyrir leik
Fylkir í örlitlu brasi
Fylkismenn hafa enþá ekki unnið keppnisleik í deildinni á þessu tímabili þrátt fyrir ágæta spilamennsku inn á milli. Liðið er þrátt fyrir það þremur leikjum frá Laugardalnum.


Fyrir leik
HK er á rönni
HK kemur inn í þennan leik í þvílíku formi en liðið hefur unnið síðustu tvo deildarleiki. Fyrst Íslands- og bikarmeistara Víkings og svo KR.

Fyrir leik
Leikið til þrautar
Þar sem þetta er bikarinn þá leikum við til þrautar hér í kvöld. Ef leikurinn er jafn eftir venjulegan leiktíma þá förum við í framlengingu og svo í vítaspyrnukeppni ef þess þarf!
Fyrir leik
Velkomin !
Góðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur til leiks í Lautina í Árbænum þar sem Fylkir og HK mætast í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla.
Hvort verður það Fylkir eða HK sem tryggja sér farseðil í átta liða úrslitin?

Hvort verður það Fylkir eða HK sem tryggja sér farseðil í átta liða úrslitin?





Viðtöl og skýrsla síðar í kvöld.