Fotbolti.net
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Mjólkurbikar kvenna
AVIS völlurinn
Rok og rigning
Þróttur R.
Þróttur R.
5 - 0
Fylkir
Fylkir
Sierra Marie Lelii 15'1 - 0María Eva Eyjólfsdóttir 34'2 - 0Kristrún Rut Antonsdóttir 45'3 - 0Freyja Karín Þorvarðardóttir 64'4 - 0Sigríður Theód. Guðmundsdóttir 94'5 - 0
Dómari: Hreinn Magnússon
Leik lokið!
Hreinn flautar leikinn af þegar Þróttarar fagna markinu!

Viðtöl og skýrsla á leiðinni.

Þangað til næst, takk fyrir mig!
Þróttur R.
94. mín
Þær bæta einu við!

Sigríður Theód. Guðmundsdóttir

Fyrirgjöf inn á teiginn sem fer út á Sigríði. Hún tekur skotið í fjærhornið í fyrsta og er að klára leikinn fyrir Þrótt.
90. mín
+2 Í uppbót
Þróttur R.
90. mín
InnHildur Laila Hákonardóttir
ÚtSierra Marie Lelii
90. mín
Sæunn tekur hornið sem Fylkiskonur skalla frá.
89. mín
Þróttur að fá horn!
86. mín
Enn eina dauðafærið!
Sierra sleppur ein í gegn og er skyndilega komin ein á ein gegn Tinnu. En hún tekur skotið framhjá. Þessi færanýting er ekki upp á marga fiska. Hversu mörg færi þurfa þær spyrja menn sig hérna.
Fylkir
84. mín
InnSigrún Helga Halldórsdóttir
ÚtSigný Lára Bjarnadóttir
Þróttur R.
84. mín
InnLea Björt Kristjánsdóttir
ÚtMaría Eva Eyjólfsdóttir
Þróttur R.
84. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtFreyja Karín Þorvarðardóttir
80. mín
Sierra að ógna
Sierra, sem hefur verið mjög góð í dag, tekur sprettinn inn á teiginn og nær skotinu á markið. Tinna ver mjög vel og handsamar boltann.
77. mín
Rétt framhjá!
Freyja fær fyrirgjöf frá Sierru inni á teig Fylkis. Hún tekur skotið í fyrsta sem fer rétt framhjá. Dauðafæri!
Þróttur R.
71. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtÁlfhildur Rósa Kjartansdóttir
Þróttur R.
71. mín
InnÍsabella Anna Húbertsdóttir
ÚtKristrún Rut Antonsdóttir
Fylkir
68. mín
InnKatrín Sara Harðardóttir
ÚtGuðrún Karítas Sigurðardóttir
67. mín
Kristrún í færi!
Caroline kemur með bolta inn á teiginn. Kristrún fær þar boltann og tekur skotið í fyrsta sem fer yfir. Hún hefði getað gert mun betur þarna.
Þróttur R.
64. mín
Þá ætti þetta að vera komið!

Freyja Karín Þorvarðardóttir (stoðsending: Sierra Marie Lelii)

Frábær leikur hjá Þrótturum en það þarf margt að gerast svo þær fari ekki áfram.

Sýndist það vera Sierra sem fær boltann inni á teig Fylkis. Hún rennir boltanum út á Freyju sem klárar vel framhjá Tinnu.
63. mín
Þróttur að fá horn!
61. mín
Boltinn kemur inn á teiginn sem Jelena skallar í varnarmann og Fylkiskonur ná að hreinsa.
60. mín
Þróttur fær hornspyrnu!
57. mín
Með sinni fyrstu snertingu!
Fylkiskonur vinna boltann ofarlega á vellinum og Birta fær hann við d-bogann. Hún tekur þar skotið sem fer beint á Mollee í markinu. Alvöru byrjun hjá Birtu.
Fylkir
56. mín
InnBirta Margrét Gestsdóttir
ÚtMarija Radojicic
56. mín
Heimakonur betri
Þróttarar byrja seinni hálfleikinn af sama krafti og þær gerðu í þeim fyrri. Færi eftir færi. Skot eftir skot. Bara tímaspursmál hvenær fjórða markið kemur.
Þróttur R.
54. mín
Gult spjald

María Eva Eyjólfsdóttir

Fylkir
51. mín
Gult spjald

Kolfinna Baldursdóttir

Brýtur á Leah á miðjum vallarhelmingi Fylkis.
50. mín
Sæunn tekur spyrnuna inn á teiginn sem Sierra skallar framhjá.
49. mín
Þróttarar að fá annað horn!
48. mín
Sæunn kemur með bolta inn á teiginn sem gestirnir eru í veseni með að hreinsa. María nær til boltans og tekur skotið sem fer yfir markið.
48. mín
Þróttur fær horn!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Heimakonur í Þrótti byrja þetta fyrir okkur á ný. Þær sækja í átt að Húsdýragarðinum.
Fylkir
45. mín
InnÞórhildur Þórhallsdóttir
ÚtViktoría Diljá Halldórsdóttir
Fylkir
45. mín
InnElísa Björk Hjaltadóttir
ÚtEmma Sól Aradóttir
45. mín
Hálfleikur
Þá er þessum fyrri hálfleik lokið. Hann hefur verið algjörlega í eigu Þróttara og þetta þriðja mark getur reynst mjög stórt.

Tökum okkur korterspásu og mætum svo aftur að vörmu spori.
Þróttur R.
45. mín
VERÐSKULDAÐ!

Kristrún Rut Antonsdóttir (stoðsending: Sierra Marie Lelii)

Þær bruna upp í skyndisókn og skora!

Sierra fær boltann ein í gegn og kemur með hann fyrir. Hún finnur Kristrúnu sem klárar með glæsibrag framhjá Tinnu í markinu. Ekkert hægt að setja út á Tinnu í þessum mörkum sem Fylkir er að fá á sig. Ef eitthvað er þá hefur hún bjargað Fylki frá stærra tapi.

Risamark rétt fyrir hálfleik!

Fylkir
45. mín
Gult spjald

Marija Radojicic

Fer í Mollee í markinu hjá Þrótti eftir að hún handsamar boltann og fær spjald.
44. mín
Emma Sól liggur niðri og þarf aðhlynningu. Búin að liggja niðri í rúmar tvær mínútur. Vonandi ekkert alvarlegt.
40. mín
Þróttarar brjóta á sér inni í teignum.
39. mín
DAUÐAFÆRI!
Caroline sleppur ein í gegn og ætlar að fara framhjá Tinnu en Tinna gerir vel og lokar. Þá fær Sierra boltann og tekur skotið en Tinna ver þá glæsilega. Þá fær loks Freyja boltann sem tekur skotið í varnarmann og í horn sem Þróttur fær.
38. mín
Ekkert breyst í þessu. Þróttarar miklu betri og líklegri að bæta við en Fylkiskonur að minnka muninn.
Þróttur R.
34. mín
Þarna kom það!

María Eva Eyjólfsdóttir (stoðsending: Caroline Murray)

Það er bara eitt lið á vellinum en Þróttarar hafa verið miklu betri þessar upphafsmínútur. Caroline kemur með bolta inn á teig Fylkis sem María klárar glæsilega í fyrsta. Loksins bæta þær við.

Verðskuldað en Þróttarar hafa verið miklu betri að mínu mati.

33. mín
Rét framhjá!
Leah með skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá. Fékk að taka skotið ein og óvölduð fyrir utan vítateig Fylkis sem fer rétt framhjá.
31. mín
Annað dauðafæri!
Sierra kemur með bolta inn á teiginn á Freyju á sem tekur skotið í varnarmann. Þaðan fær Leah boltann og er ein inni á teignum og tekur skotið rétt framhjá. Hvernig færi vilja þær spyr maður sig.
27. mín
Dauðafæri!
Geggjaður bolti inn fyrir vörn Fylkis sem Freyja fær og er skyndilega komin ein á móti Tinnu í markinu. Hún tekur skotið sem fer framhjá. Hræðilegt skot hjá Freyju og þarna átti hún bara að gera mun betur.
24. mín
Tinna ver!
Það kemur hár bolti inn á teig og Fylkiskonur ná ekki að hreinsa. Freyja Karín fær þá boltann og tekur skotið en Tinna ver glæsilega í markinu ein á móti Freyju.
24. mín
Kolfinna fer í frekar groddaralega tæklingu á Freyju Karínu en sleppur við spjald. Held að þessi tækling eigi að verðskulda spjald.
19. mín
Heimakonur betri aðilinn
Þróttarar miklu betri aðilinn í dag að mínu mati. Líklegri að bæta við forystuna en að Fylkiskonur jafni þetta.
Þróttur R.
15. mín
MAAAARRKKK!!

Sierra Marie Lelii (stoðsending: Kristrún Rut Antonsdóttir)

Þær voru búnar að hóta þessu með þessum fyrirgjöfum og þarna kom það!

Kristrún fær boltann á hægri kantinum og kemur með geggjaða fyrirgjöf inn á teiginn. Þar er Sierra mætt og klárar glæsilega. Sendir Tinnu í rangt horn.

Eins og ég segi, verðskuldað hjá Þrótti.
12. mín
Annað færi
María með fyrirgjöf fyrir teiginn á Kristrúnu sem skallar boltann rétt framhjá. Eins og ég segi. Þróttur eru að fá færin.
11. mín
Færi!
Caroline með fyrirgjöf á Leah sem er ein með markið fyrir framan sig. Hún var ótrúlega nálægt markinu en skallar yfir. Þróttarar byrja leikinn betur.
10. mín
Byrjunarliðin
Svona lítur þetta út hjá báðum liðum í dag.

Þróttur (5-3-2)
Mollee
María - Jelena - Sæunn - Sóley - Caroline
Kristrún - Álfhildur (F) - Leah
Freyja - Sierra

Fylkir (4-2-3-1)
Tinna
Viktoría - Erna - Klara - Mist
Signý (F) - Abigail
Emma - Marija - Kolfinna
Guðrún K.
8. mín
Freyja Katrín með skot af löngu færi sem Tinna er í engum vandræðum með.
7. mín
Ekkert mikið um almennilegar opnanir þessar upphafsmínútur fyrir utan færið sem Sierra fékk á 2. mínútu. Fylkiskonur líta vel út.
2. mín
Sæunn tekur spyrnuna sem fer í gegnum allan pakkann og í markspyrnu.
2. mín
Heimakonur að fá horn!
Sierra sleppur í gegn og gerir vel á boltanum gegn tveimur varnarmönnum Fylkis. Hún nær skotinu sem Tinna ver í horn.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta byrjað. Það eru gestirnir úr Árbænum sem hefja hér leik og sækja í átt að húsdýragarðinum.

Heimakonur í Þrótti spila í rauðum og hvítum treyjum, svörtum stuttbuxum og hvítum sokkum.

Gestirnir úr Árbænum spila í bláum og appelsínugulum treyjum, bláum og appelsínugulum stuttbuxum og bláum sokkum.

Góða skemmtun!
Fyrir leik
Styttist
Þá ganga liðin til vallar og gera sig klár í slaginn. Það styttist í þessa veislu.
Fyrir leik
Mættust fyrir þremur vikum
Liðin mættust auðvitað í fyrstu umferðinni í deildinni. Þá skildu liðin jöfn eftir að Fylkiskonur jöfnuðu í lokin en þær voru einnig nálægt því að vinna leikinn í restina.

Fyrir leik
Teymið
Hreinn Magnússon sér um flautukonsertið í dag en honum til aðstoðar verða þeir Milan Djurovic og Steinar Stephensen. Skiltadómari er Daníel Ingi Þórisson en KSÍ er með engan eftirlitsmann á leiknum samkvæmt síðunni þeirra.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Komin pressa?
Bryjun Þróttara á tímabilinu verður að teljast óásættanleg. Liðið er einungis með eitt stig eftir 5 leiki og er í fallsæti, fjórum stigum á eftir Fylki sem eru í öruggu sæti. En eina stigið þeirra til þessa kom einmitt á mót Fylkiskonum í fyrstu umferð. Þetta getur ekki verið byrjunin sem Þróttarar voru búnir að sjá fyrir sér. Þá kannski þykir eðlilegt að spurja sig, er strax komin pressa á Óla Kristjáns eftir þessa hörmulegu stigasöfnun?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjuðu vel
Fylkiskonur byrjuðu leiktíðina mjög vel og voru ósigraðar eftir þrjá leiki. Í seinustu tveimur deildarleikjum hafa þær reyndar tapað og sitja núna í 8. sætinu, fjórum stigum fyrir ofan Þrótt. Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með nýliðanum úr Árbænum í sumar til þessa. Gunnar er að gera mjög góða hluti með þetta skemmtilega lið.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Bikarstemning!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Þróttar og Fylkis í Mjólkurbikarnum. Alvöru Bestu deildarslagur sem mun eiga sér stað hérna í Laugardalnum á eftir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.