SKÝRSLAN: Rigndi inn mörkunum í Boganum
Hvað réði úrslitum?
Þór/KA gerði út um leikinn í fyrri háflleik. Tindastóll mætti ekki til leiks og það var orðið of seint að ætla gera eitthvað í seinni hálfleik sem þær svosem gerðu ekki heldur.
Bestu leikmenn
1. Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Frábær leikur hjá henni í dag. Byrjar mótið gríðarlega vel. Leggur upp fyrsta markið og skorar annað markið.
2. Hulda Björg Jónsdóttir (Þór/KA)
Örugg frammistaða hjá henni. Hafði áhrif á sóknarleikinn með því að gefa glæsilega stoðsendingu á Karen í öðru markinu. Iðunn Rán og Kimberley áttu einnig mjög góðan leik.
Atvikið
Fimmta mark Þór/KA. Emelía Ósk Kruger skoraði það eftir sendingu frá Sonju Björgu Sigurðardóttur. Þær voru búnar að vera inn á í tæpar fimm mínútur. Sonja var nálægt því að skora rétt áður.
Hvað þýða úrslitin?
Þór/KA fer upp í 2. sæti deildarinnar eftir sigur Blika gegn Val í kvöld. Liðið er með jafnmörg stig og Valur og þremur stigum á eftir Breiðablik. Tindastóll er í 6. sæti með sex stig eftir sex umferðir. sex.
Vondur dagur
Tindastólsliðið í heild sinni. Mættu ekki til leiks og Þór/KA hjólaði yfir þær í fyrri hálfleiknum.
Dómarinn - 8
Flott frammistaða. Konráð Freyr Sigurðsson aðstoðarþjálfari Tindastóls fékk að líta rauða spjaldið eftir annað mark Þór/KA þar sem hann taldi að um rangstöðu var að ræða. Ég held að teymið hafi gert hárrétt þar.



