Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
Gul viðvörun
2 - 1
Valur
Valur
0 - 134' Guðrún Elísabet BjörgvinsdóttirAndrea Rut Bjarnadóttir 64'1 - 1Barbára Sól Gísladóttir 71'2 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: Ekki sama áran í gulri viðvörun

Hvað réði úrslitum?

Við sáum ekki þau gæði sem við hefðum átt að sjá frá þessum liðum í kvöld. Það skrifast hinsvegar ekki á liðin heldur aðstæðurnar sem þessi lið þurftu að spila við í dag. Vindurinn var erfiður viðreignar oft á tíðum. Leikur tveggja hálfleika þar sem Valur var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik eftir skiptingarnar hjá Nik tóku Blikar öll völd og snéru við leiknum og tóku sigurinn.

Bestu leikmenn

1. Barbára Sól Gísladóttir

Var frábær í kvöld og skilaði flottri frammistöðu. Skoraði sigurmarkið og því vel að þessu komin.

2. Heiða Ragney Viðarsdóttir

Var frábær á miðjunni hjá Blikum. Var með góð tök á leiknum og yfirveguð. Ólöf Sigríður fær líka gott shout fyrir sína innkomu.

Atvikið

Sigurmarkið. Sturlaður bolti fyrir markið þar sem Barbára Sól var grunsamlega frí á fjærstönginni og stangaði boltann inn. Eftir þetta varð leikurinn eiginlega bara game over.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik eru áfram á toppi deildarinnar með fullt hús. Fyrsta misstig Vals í sumar sem sitja þó áfram í öðru sætinu.

Vondur dagur

Væri classic að nefna aðstæðurnar hérna. Ef ég þarf hinsvegar að velja leikmann þá verð ég því miður að nefna Málfríður Anna Eiríksdóttir. Þetta var ekki hennar dagur í kvöld en ég gef henni þó smá slaka sökum aðstæðna sem voru alls ekki öfundsverðar.

Dómarinn - 10

Frábærlega dæmdur leikur. Enginn vafa atriði eða nein móment sem hægt er að pikka út. Negldi allar ákvarðanir. Hann og hans teymi geta gengið stolt frá þessu verkefni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.