SKÝRSLAN: Færin fóru forgörðum í Njarðvík
Hvað réði úrslitum?
Færanýtingin fyrst og fremst. Ég get ekki sagt annað en að miðað við færi eingöngu hefði ÍBV liðið sennilega átt skilið að sigra leikinn. Það er samt ekki nóg að skapa færin, það þarf að nýta þau líka. Aron Snær Friðriksson hafði takmarkaðan áhuga á því að tapa þessum leik og varði það sem á markið kom og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Aron Snær Friðriksson
Varði í allavega þrígang stórkostlega í leiknum úr algjörum dauðafærum. Það sem menn í Vesturbænum mega klóra sér í kollinum að hafa leyft honum að fara.
2. Arnar Breki Gunnarsson
Skapaði fjölmargar hættulegar stöður fyrir Eyjaliðið í leiknum sem á öðrum degi hefðu leitt til marks. Fínasti leikur hjá honum þó hann sé eflaust súr með aðeins eitt stig.
Atvikið
Dauðafæri Sverris Hjaltested í fyrri hálfleik þegar Aron Snær varði frá honum á ótrúlegan hátt af stuttu færi. Maður mátti svo sem lesa í það þa að þetta yrði einn af þessum dögum sem boltinn hreinlega vildi ekki fara inn.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvík tyllir sér á toppinn á markatölu fyrir ofan Fjölni með tíu stig. ÍBV í fimmta sætinu með fimm stig.
Vondur dagur
Sóknarmenn ÍBV fá þetta í dag. Svolítið sérstakt því þeir voru alls ekki að spila illa við erfiðar aðstæður. En þeir lifa á mörkum og þegar boltinn vill ekki inn þá eiga þeir eflaust erfiðan dag. Nokkrir þeirra sem spila eflaust til baka í hausnum færi sem þeir fengu í dag og skilja ekki hvernig ekki varð úr mark.
Dómarinn - 9
Gunnar Freyr var virkilega flottur á flautunni í dag. Spjaldaði á réttum augnablikum, leyfði leiknum að fljóta eins og kostur var og átti heilt yfir bara prýðisdag.


