SKÝRSLAN: Selfoss enn taplausir eftir sex umferðir
Hvað réði úrslitum?
Reynir byrjaði betur en eftir að þeir komust yfir varð leikurinn jafnari og í seinni hálfleik voru það Selfyssingar sem stjórnuðu tempóinu og sigldu þrem stigum í hús
Bestu leikmenn
1. Jakub Górski (Reynir S.)
Varði a.m.k. tvisvar eftir að Selfyssingar sluppu í gegn og átti margar flottar vörslur til að halda Reyni inni í leiknum
2. Dagur Jósefsson (Selfoss)
Skoraði mikilvægt jöfnunar mark og var yfirhöfuð mjög öruggur í flestu sem hann gerði
Atvikið
Það gerist tvisvar að Selfyssingar sleppa einir í gegn á stuttum tíma en Jakub varði frábærlega í bæði skiptin til að halda stöðunni í 2-1
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss er núna fimm stigum á undan Ægi sem eru í öðru sæti en með leik til góða. Reynir eru ennþá í 10. sæti en markatlan einum verri en fyrir leik
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir Jakub sem spilaði frábæran leik en hefur lítið til að sína fyrir það eftir á að hyggja.
En annars vondur dagur að hvorugt lið skoraði fleiri mörk miðað við tækifærin sem þau fengu í leiknum
Dómarinn - 6/10
Nokkrir skrítnir dómar og það virkaði eins og Twana væri ekki alveg 100% allan tímann


